Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Dorzolamide Alvogen - Augndropar, lausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Dorzolamide Alvogen - Augndropar, lausn

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: S01EC03
ATC Heiti: Dorzolamidum
Norrænt Vörunúmer: 497995
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.01.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Dorzolamide Alvogen er dauðhreinsuð augndropalausn. Dorzolamide Alvogen inniheldur dorzólamíð,
sem tileyrir flokki lyfja sem kallast kolsýruanhýdrasahemlar.

Lyfinu er ávísað til að lækka hækkaðan augnþrýsting og við meðhöndlun á gláku. Lyfið má nota eitt
sér eða samhliða öðrum lyfjum sem lækka augnþrýsting (svokallaða beta-blokka).
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Dorzolamide Alvogen inniheldur
- Virka innihaldsefnið er dorzólamíð. Hver ml inniheldur 22,3 mg af dorzólamíð hýdróklóríði
sem jafngildir 20 mg af dorzólamíði.
- Önnur innihaldsefni eru mannitól (E421), hýdroxýetýlsellulósu, 50% benzalkónklóríð lausn
(sem rotvarnarefni), natríum sítrat, natríum hýdroxíð til að stilla sýrustig (pH) og vatn fyrir
stungulyf.

Útlit Dorzolamide Alvogen og pakkningastærðir

Dorzolamide Alvogen er dauðhreinsuð, jafnþrýstin, jöfnuð (buffered), litlaus, tær örlítið seigfljótandi
lausn í hvítu ógegnsæju íláti úr meðalþéttu pólýetýleni með innsigluðum dropaoddi og loki sem er
samsett úr tveimur hlutum. Hvert ílát inniheldur 5 ml af lausn.

Dorzolamide Alvogen er fáanlegt í pakkningum sem innihalda 1 ílát, 3 ílát eða 6 ílát.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland

Framleiðandi
Pharmathen S.A.
6 Dervenakion str., 15351 Pallini, Attiki
Grikkland

og

Famar S.A.
63 Agiou, Dimitriou St., Alimos, Athens 17456
Grikkland

Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í janúar 2026.