Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Dolorin Junior - Endaþarmsstíll
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Dolorin Junior - Endaþarmsstíll

Lausasölulyf
ATC Flokkur: N02BE01
ATC Heiti: Paracetamolum
Norrænt Vörunúmer: 105621
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf.
Skráningardagsetning: 01.04.2021
Magn
Dolorin Junior er fáanlegt sem endaþarmsstílar í styrkleikunum 125 mg (fyrir ungabörn) og 250 mg
(fyrir börn).

Virka efnið í Dolorin Junior er parasetamól, sem er þekkt fyrir verkjastillandi og hitalækkandi verkun
sína.

Dolorin Junior er ætlað til meðferðar við vægum til miðlungs miklum verkjum, hálsbólgu (að
frátalinni eitlabólgu) og vægum til miðlungs miklum höfuðverk.

Dolorin Junior er einnig ætlað til meðferðar við hita sem varir skemur en í 3 daga og sem meðferð við
einkennum kvefs og flensulíkum einkennum.

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 2-3 daga.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Dolorin Junior inniheldur

Dolorin Junior 125 mg stílar
- Virka innihaldsefnið er parasetamól
Hver stíll inniheldur 125 mg af parasetamóli.
- Önnur innihaldsefni eru: Fitusýrur, glýseríð

Dolorin Junior 250 mg stílar
- Virka innihaldsefnið er parasetamól
Hver stíll inniheldur 250 mg af parasetamóli.
- Önnur innihaldsefni eru: Fitusýrur, glýseríð

Lýsing á útliti Dolorin Junior og pakkningastærðir
Dolorin Junior 125 mg stílar og Dolorin Junior 250 mg stílar eru fáanlegir í pakkningum með 5 eða
10 stílum.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Williams & Halls ehf
Reykjavíkurvegi 62
220 Hafnarfjörður
Ísland

Framleiðandi
MEDINFAR MANUFACTURING, S.A.
Parque Industrial Armando Martins Tavares
Rua Outeiro da Armada, 5
Condeixa-a-Nova
3150-194 Sebal
Portúgal

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní 2025.