Lyf fyrir menn

Doloproct - Endaþarmsstíll
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C05AA08
ATC Heiti: Fluocortolonum
Norrænt Vörunúmer: 448217
Markaðsleyfishafi: Karo Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.06.2023
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Doloproct inniheldur tvö virk efni: flúókortólónpívalat og lídókaínhýdróklóríð.
- Virka efnið flúókortólónpívalat tilheyrir hópi barkstera. Það minnkar framleiðslu efna sem
valda bólgum í líkamanum. Þetta dregur úr einkennum eins og bólgum, kláða og sársauka.
- Virka efnið lídókaínhýdróklóríð tilheyrir hópi staðdeyfilyfja. Það veldur deyfingu á því svæði
sem það er notað. Þetta dregur úr sársauka og kláða á svæðinu.
Doloproct er ætlað til notkunar hjá fullorðnum við einkennum sem tengjast
- stækkun æða í kringum endaþarmsop (gyllinæð)
- bólga í slímhúð endaþarms (sem ekki er smitandi)
Doloproct getur ekki upprætt orsök gyllinæðar eða bólgu í slímhúð endaþarms (sem ekki er
smitandi).

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Doloproct inniheldur - Virku innihaldsefnin eru flúókortólónpívalat og lídókaínhýdróklóríð (vatnsfrítt).
1 stíll inniheldur 1 mg af flúókortólónpívalati og 40 mg af lídókaínhýdróklóríði (vatnsfríu).
- Önnur innihaldsefni eru hörð fita.
Lýsing á útliti Doloproct og pakkningastærðir
Doloproct endaþarmsstílar eru gulhvítir á litinn.
Doloproct endaþarmsstílar eru fáanlegir í öskjum sem innihalda lagskiptar álþynnur með stílum.
Þrjár pakkningastærðir eru fáanlegar
3 stílar
10 stílar
120 stílar (sjúkrahúspakkning)
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Doloproct er einnig fáanlegt sem endaþarmskrem.
Markaðsleyfishafi
Karo Pharma AB
Box 16184
103 24 Stockholm
Svíþjóð
Framleiðandi
Istituto de Angeli S.r.l.
Località Prulli, 103/C
I-50066 Reggello (Flórens)
Ítalía
Umboð á Íslandi
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
info@alvogen.is
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi
heitum:
Austurríki Doloproct
Eistland Doloproct
Þýskaland Doloproct
Ungverjaland Doloproct
Lettland Doloproct
Litháen Doloproct
Malta Doloproct
Slóvakía Doloproct
Svíþjóð Doloproct
Ítalía Serekis
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2021.