Lyf fyrir menn

Dimax Rapid - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: M01AB05
ATC Heiti: Diclofenacum
Norrænt Vörunúmer: 412520
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.09.2021
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Dimax Rapid inniheldur diclofenackalíum.
Dimax Rapid verkar gegn verkjum (verkjastillandi) og bólgu (bólgueyðandi). Lyf með þessa eða
svipaða eiginleika kallast einnig bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki eru sterar (NSAID).
Dimax Rapid er notað sem:
Skammtímameðferð við eftirtöldu
• gigtarsjúkdómum í mjúkvefjum (t.d. belgbólgu eða sinabólgu)
• verk eða bólgu vegna slyss eða aðgerðar (þ.m.t. tannaðgerð)
• tíðaverk (tíðaverk án undirliggjandi sjúkdóms)
Bráð meðferð við mígreni, með eða án fyrirboðaeinkenna.
Dimax Rapid 50 mg er ekki ætlað börnum yngri en 16 ára.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Dimax Rapid inniheldur - Virka innihaldsefnið er diclofenackalíum.
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 50 mg af diclofenackalíum.
- Önnur innihaldsefni eru:
Örkristallaður sellulósi, laktósaeinhýdrat, maíssterkja, natríumkarmellósa, magnesíumsterat,
vatnsfrí kísilkvoða, hýprómellósi, glýseról 85%, títantvíoxíð (E171), rautt og gult járnoxíð
(E172).
Útlit Dimax Rapid 50 mg og pakkningastærðir
Dimax Rapid 50 mg er rauðbrún, kringlótt, filmuhúðuð tafla, 11,1 mm í þvermál.
Dimax Rapid 50 mg fæst í pakkningum sem innihalda 10, 20, 20x1, 30, 50, 50x1, 100 og
100 x 1 filmuhúðaðar töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland
Framleiðandi
Merckle GmbH,
Ludwig-Merckle Strasse 3
89143 Blaubeuren,
Þýskaland
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.