Lyf fyrir menn

Diclofenac Teva - Hlaup
Lausasölulyf
ATC Flokkur: M02AA15
ATC Heiti: Diclofenacum
Norrænt Vörunúmer: 381578
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.07.2021
Magn
Diclofenac Teva inniheldur virka efnið díklófenak, sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi
gigtarlyf (NSAID-lyf).
Fyrir fullorðna og unglinga 14 ára og eldri
Þú getur notað Diclofenac Teva við verkjum, eymslum og þrota í liðum og vöðvum vegna bólgu.
Fyrir unglinga 14 ára og eldri er lyfið ætlað til skammtímameðferðar.
gigtarlyf (NSAID-lyf).
Fyrir fullorðna og unglinga 14 ára og eldri
Þú getur notað Diclofenac Teva við verkjum, eymslum og þrota í liðum og vöðvum vegna bólgu.
Fyrir unglinga 14 ára og eldri er lyfið ætlað til skammtímameðferðar.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Diclofenac Teva inniheldur - Virka innihaldsefnið er díklófenak.
- 1 g inniheldur 23,2 mg af díklófenaktvíetýlamíni, sem jafngildir 20 mg af díklófenaknatríum.
- Önnur innihaldsefni eru karbómer, kókóýlkaprýlókaprat, makrógólsetósterýleter, paraffínolía,
díetýlamín ísóprópýlalkóhól, própýlenglýkól (E1520), olíusýra (E570), bútýlhýdroxýtólúen
(E321), ilmefni (inniheldur bensýlalkóhól, sítral, sítrónellól, kúmarín, evgenól, farnesól,
geraníól, d-límónen, línalúl), eimað vatn.
Lýsing á útliti Diclofenac Teva og pakkningastærðir
Diclofenac Teva er hvítt til næstum hvítt, einsleitt hlaup sem pakkað er í álhúðaðar túpur sem lokaðar
eru með PE-innsigli og skrúftappa úr pólýprópýleni, og kemur í eftirfarandi pakkningastærðum: 30 g,
50 g, 60 g, 100 g, 150 g í hverri túpu.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Teva B.V., Swensweg 5, 2031 GA Haarlem, Holland.
Framleiðandi
Merckle GmbH
Graf-Arco.Str. 3
89079 Ulm
Þýskaland
Umboðsmaður á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshrauni 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2026.