Lyf fyrir menn

Dexavit - Stungulyf/innrennslislyf, lausn
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: H02AB02
ATC Heiti: Dexamethasonum
Norrænt Vörunúmer: 517803
Markaðsleyfishafi: XGX Pharma ApS
Skráningardagsetning: 01.03.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Dexavit inniheldur dexametasón. Dexametasón tilheyrir flokki lyfja sem nefnist barksterar. Það kemur
í veg fyrir losun bólguvaldandi efna í líkamanum. Dexavit er notað í bráðatilvikum, þegar ekki er unnt
að nota barkstera til inntöku.
Dexavit er notað til meðferðar við ýmsum kvillum, svo sem:
- heilabjúg (auknum þrýstingi innan höfuðkúpu) af völdum heilaæxlis, heilaskurðaðgerðar, ígerðar í
heila eða mengisbólgu
- alvarlegum húðkvillum
- virkum stigum bandvefssjúkdóma, þ.m.t. kvilla sem nefnist rauðir úlfar
- alvarlegum smitsjúkdómum, ásamt meðferð með sýkingarlyfjum
- Fyrirbyggjandi meðferð gegn og meðferð við ógleði og uppköstum af völdum meðferðar með
krabbameinslyfjum
- gigtsjúkdómum
- íferð, svo sem bólgu í sinum eða liðpokum (vökvafylltir pokar sem umlykja liði)
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Dexavit inniheldur - Virka innihaldsefnið er dexametasónfosfat.
1 ml inniheldur 4 mg af dexametasón fosfati (sem 4,37 mg af dexametasón natríum fosfati) –
sem jafngildir 3,33 mg af dexametasóni.
5 ml innihalda 20 mg af dexametasón fosfati (sem 21,85 mg af dexametasón natríum fosfati) –
sem jafngildir 16,65 mg af dexametasóni.
- Önnur innihaldsefni eru dínatríum edetat, natríum sítrat (E 331), natríum hýdroxíð (E 524) (til
stillingar sýrustigs) og vatn fyrir stungulyf.
Lýsing á útliti Dexavit og pakkningastærðir
Dexavit er tær, litlaus lausn í glerlykju sem inniheldur 1 ml eða 5 ml.
Pakkningastærðir:
1 ml lykja: 3 x 1 ml lykjur eða 100 x 1 ml lykjur
5 ml lykja: 5 x 5 ml lykjur
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
XGX Pharma ApS
Frederiksgade 11, st. th.
1265 København K
Danmörk
Framleiðandi
Sanos Supply ApS
Ved Klædebo 14,
2970 Hørsholm
Danmörk
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2024.
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
DK, FI, IS, NO, SE: Dexavit