Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Dermovat - Smyrsli
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Dermovat - Smyrsli

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D07AD01
ATC Heiti: Clobetasolum
Norrænt Vörunúmer: 380621
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline Pharma A/S
Skráningardagsetning: 01.12.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Þetta lyf kallast Dermovat og inniheldur klóbetasólprópíónat, sem er barksteri. Lyfjum sem innihalda
barkstera til útvortis notkunar er skipt í fjóra mismunandi styrktarflokka: I. vægir, II. meðalsterkir, III.
sterkir og IV. mjög sterkir. Dermovat tilheyrir flokki mjög sterkra barkstera (flokki IV). Sterar hjálpa
til við að minnka roða, þrota og ertingu í húðinni.

Dermovat smyrsli
Dermovat smyrsli dregur úr einkennum ákveðinna húðsjúkdóma:
• Exem sem tekur sig oft upp aftur
• Psoriasis (þykkar flögur af bólginni, rauðri húð sem eru oft þaktar silfurlituðu hrúðri)
• Flatskænings (húðsjúkdómur sem veldur rauð-fjólubláum og flötum hnúðum með kláða í
lófum, á upphandleggjum eða neðri hluta fótleggja)
• Staðbundins helluroða (húðsjúkdómur sem oftast leggst á andlit, eyru eða hársvörð og veldur
öramyndun og auknu næmi gagnvart sólarljósi á viðkomandi húðsvæði)
• Sjúkdóma sem ekki svara sterum með vægari verkun á viðunandi hátt.

Látið lækninn vita ef þú lagast ekki eða ert verri eftir 2-4 vikur.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Dermovat smyrsli inniheldur

Dermovat smyrsli 0,5 mg/g
- Virka innihaldsefnið er klóbetasól. 1 g af smyrsli inniheldur 0,5 mg af klóbetasólprópíónati.
- Önnur innihaldsefni eru própýlenglýkol, sorbitanseskvióleat, paraffín og hvítt vaselín.

Lýsing á útliti Dermovat og pakkningastærðir
Dermovat 0,5 mg/g smyrsli er fáanlegt í 25 g, 30 g og 100 g túpum

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
GlaxoSmithKline Pharma A/S
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand

Danmörk

Framleiðandi
Delpharm Poznań S.A.
ul. Grunwaldzka 189
60-322 Poznan
Pólland

Umboð á Íslandi
Vistor hf., sími: 535-7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.

Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.