Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Dermovat - Húðlausn
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Dermovat - Húðlausn

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D07AD01
ATC Heiti: Clobetasolum
Norrænt Vörunúmer: 419952
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline Pharma A/S
Skráningardagsetning: 01.10.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Þetta lyf kallast Dermovat og inniheldur klóbetasólprópíónat, sem er barksteri. Lyfjum sem innihalda
barkstera til útvortis notkunar er skipt í fjóra mismunandi styrktarflokka: I. vægir, II. meðalsterkir, III.
sterkir og IV. mjög sterkir. Dermovat tilheyrir flokki mjög sterkra barkstera (flokki IV). Sterar hjálpa
til við að minnka roða, þrota og ertingu í húðinni.

Dermovat húðlausn er notuð til að draga úr roða og kláða af völdum ákveðinna sjúkdóma í hársverði,
t.d. psoriasis (þykkar flögur af bólginni, rauðri húð sem eru oft þaktar silfurlituðu hrúðri).

Hafðu samband við lækni ef þú lagast ekki eða ert verri eftir 2-4 vikur.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Dermovat húðlausn 0,5 mg/ml inniheldur
- Virka innihaldsefnið er klóbetasól. 1 ml af húðlausn inniheldur 0,5 mg af klóbetasólprópíónati.
- Önnur innihaldsefni eru karbómer, ísóprópanól, natríumhýdroxíð og hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Dermovat og pakkningastærðir
Dermovat 0,5 mg/ml húðlausn er fáanleg í 25 ml og 100 ml plastflöskum

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
GlaxoSmithKline Pharma A/S
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk

Framleiðandi
Aspen Bad Oldesloe GmbH, Bad Oldesloe, Þýskalandi

Umboð á Íslandi
Vistor hf., sími: 535-7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2022.

Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.