Lyf fyrir menn

Decutan - Mjúkt hylki
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D10BA01
ATC Heiti: Isotretinoinum
Norrænt Vörunúmer: 022904
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.02.2006
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Decutan inniheldur „ísótretínóín“ – efni sem líkist A-vítamíni, og tilheyrir flokki lyfja sem kallast
„retínóíðar“ (til meðferðar á þrymlabólum).
Decutan er notað til meðhöndlunar á slæmum þrymlabólum hjá fullorðnum og unglingum (svo
sem hnúðóttum (nodular) þrymlabólum eða hnútörtum (conglobate) eða þrymlabólum þar sem hætta
er á varanlegum örum) sem ekki hafa svarað hefðbundinni meðferð með sýklalyfjum og útvortis
meðferð.
Decutan á ekki að nota til meðhöndlunar á þrymlabólum fyrir kynþroska og er ekki ætlað börnum
undir 12 ára aldri.
Meðferð með Decutan skal vera undir eftirliti húðsjúkdómalæknis (læknir sem sérhæfir sig í
meðferð húðvandamála).

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Decutan inniheldur - Virka innihaldsefnið er ísótretínóín. Hvert mjúkt hylki inniheldur 10 mg eða 20 mg af
ísótretínóíni.
- Önnur innihaldsefni eru:
Innihald hylkjanna
Sojaolía, DL-alfa-tókóferól, tvínatríumedetat, bútýlhýdroxýanisól, hert jurtaolía, sojaolía (að
hluta til hert) og gult bývax.
- Hylkisskel:
10 mg hylki: Gelatín, glýceról 98-101%, sorbitóllausn 70%, hreinsað vatn, ponceau 4R (E 124),
svart járnoxíð (E 172), títantvíoxíð (E 171).
20 mg hylki: Gelatín, glýceról 98-101%, sorbitóllausn 70%, hreinsað vatn, ponceau 4R (E 124),
indigótín (E 132), títantvíoxíð (E 171).
Lýsing á útliti Decutan og pakkningastærðir
Decutan 10 mg: Ljósfjólublá, aflöng, mjúk gelatínhylki sem innihalda gulan/appelsínugulan,
ógegnsæjan, seigfljótandi vökva.
Decutan 20 mg: Dumbrauð, aflöng, mjúk gelatínhylki sem innihalda gulan/appelsínugulan,
ógegnsæjan, seigfljótandi vökva.
Hylkin fást í þynnupakkningum sem innihalda
Decutan 10 mg: 30 stk.
Decutan 20 mg: 30, 60 stk.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Teva B.V., Swensweg 5, 2031 GA Haarlem, Holland.
Framleiðandi
Actavis Group PTC ehf., Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður.
Umboðsmaður á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf., Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður.
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2024.
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar,
“http://www.lyfjastofnun.is” www.lyfjastofnun.is.