Lyf fyrir menn

Daren - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C09AA02
ATC Heiti: Enalaprilum
Norrænt Vörunúmer: 042157
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.05.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Daren inniheldur virkt efni sem kallast enalapríl maleat. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast
ACE-hemlar.
Daren er notað:
- til meðferðar við háum blóðþrýstingi (háþrýstingi),
- til meðferðar við hjartabilun (minnkaðri hjartastarfsemi). Það getur dregið úr þörfinni á að fara á
sjúkrahús og getur lengt líf sumra sjúklinga,
- til að fyrirbyggja einkenni hjartabilunar. Einkennin eru: mæði, þreyta eftir væga líkamlega
áreynslu eins og göngu, eða bólga á ökklum og fótleggjum.
Lyfið verkar með því að víkka æðarnar. Þetta lækkar blóðþrýstinginn. Lyfið byrjar venjulega að verka
innan 1 klst. og áhrifin vara í að minnsta kosti 24 klst. Sumir einstaklingar þurfa meðferð í nokkrar
vikur áður en ákjósanleg áhrif á blóðþrýstinginn sjást.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Daren inniheldur - Virka innihaldsefnið er enalapríl maleat.
Hver tafla inniheldur 2,5 mg af enalapríl maleati.
Hver tafla inniheldur 5 mg af enalapríl maleati.
Hver tafla inniheldur 10 mg af enalapríl maleati.
Hver tafla inniheldur 20 mg af enalapríl maleati.
- Önnur innihaldsefni eru natríumhýdrógenkarbónat, laktósaeinhýdrat, maíssterkja,
hýdroxýprópýlsellulósi, talkúm og magnesíumsterat.
- 10 mg taflan inniheldur að auki rautt járnoxíð (E172) og 20 mg taflan inniheldur að auki rautt
járnoxíð (E172) og gult járnoxíð (E172).
Lýsing á útliti Daren og pakkningastærðir
Enalapríl 2,5 mg töflur eru hvítar, kringlóttar, tvíkúptar töflur með skábrún.
Þær koma í þynnupakkningum með 20, 28, 30, 50, 56, 100 og 250 töflum.
Enalapríl 5 mg töflur eru hvítar, kringlóttar, tvíkúptar töflur með skábrún og deiliskoru á annarri
hliðinni.
Þær koma í þynnupakkningum með 20, 28, 30, 50, 50 x 1, 60, 100, 250 og 500 töflum.
Enalapríl 10 mg töflur eru rauðbrúar með einstaka blettum, kringlóttar, tvíkúptar töflur með skábrún
og deiliskoru á annarri hliðinni.
Þær koma í þynnupakkningum með 20, 28, 30, 50, 50 x 1, 100 og 250 töflum.
Enalapríl 20 mg töflur eru föl appelsínugular með einstaka blettum, kringlóttar, tvíkúptar með skábrún
og deiliskoru á annarri hliðinni.
Þær koma í þynnupakkningum með 14, 20, 28, 30, 50, 50 x 1, 100 og 250 töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031GA Haarlem
Holland
Framleiðandi
Teva Operations Poland Sp. z o.o.
ul. Mogilska 80
31-546 Krakow
Pólland
Merckle GmbH
Ludwig-Merckle-Str. 3
Weiler, 89143 Blaubeuren
Þýskaland
Umboðsmaður á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2022.
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.lyfjastofnun.is.