Lyf fyrir menn

Conoxia - Lyfjagas undir þrýstingi
Lausasölulyf
ATC Flokkur: V03AN01
ATC Heiti: Súrefni
Norrænt Vörunúmer: 076361
Markaðsleyfishafi: Linde Gas AB
Skráningardagsetning: 01.12.2009
Magn
Upplýsingar um CONOXIA
CONOXIA inniheldur súrefni sem notað er til innöndunar. Það er litlaust, lyktar- og bragðlaust og
fæst í þrýstihylkjum með eða án þrýstijafnara. Þrýstihylkið inniheldur hreint súrefni.
CONOXIA eykur súrefnismagn í blóði (aukin súrefnismettun). CONOXIA gerir það að verkum að
meira súrefni flyst til allra líkamsvefja.
Við hverju CONOXIA er notað
Við eðlilegan þrýsting er CONOXIA notað:
• Til meðferðar á bráðum eða langvinnum súrefnisskorti (lág súrefnisgildi í blóði)
• Sem hluti af fersku gasflæði sem notað er við almenna svæfingu og gjörgæslu
• Til að knýja eimgjafa við innöndun á innöndunarlyfjum
• Sem fyrsta hjálp - meðferð með 100% súrefni við köfunarslys.
• Meðferð við bráðri höfuðtaugakveisu (Horton's syndrome)
Nota má CONOXIA við eðlilegan þrýsting fyrir alla aldurshópa nema hjá börnum með bráða
höfuðtaugakveisu sem ekki á að meðhöndla með CONOXIA.
Nota má CONOXIA við háan þrýsting í svonefndum þrýstiklefum til:
- Að auka súrefnisinnihald í blóði og vefjum til að draga úr hættu á skaða af völdum
kafaraveiki, gas- eða loftbólna í æðum
- Meðferðar á kolmónoxíðeitrun
- Meðferðar á sýkingum í vefjum (clostridial myonecrosis, gasdrep)
Nota má meðferð með CONOXIA í þrýstiklefum hjá öllum aldurshópum (sjá einnig kafla 2).

Pakkningar og aðrar upplýsingar
CONOXIA inniheldur - Virka innihaldsefnið er 100% súrefni (efnafræðitákn: O2)
- Það eru engin önnur innihaldsefni í CONOXIA
Lýsing á útliti CONOXIA og pakkningastærðir
Öxl þrýstihylkisins er hvít (súrefni). Bolur þrýstihylkisins er hvítur (lyfjalofttegund).
Hylki/hylkjabúnt fyllt að 200 börum, hvert um sig 153 bör*, hvert um sig 138 bör*, gefa u.þ.b. X lítra
af gasi við staðalloftþrýsting og 15°C samkvæmt eftirfarandi töflu.
Stærð
hylkis
í
lítrum
0,4 1 1,1 1,2 2 2,5 3 4 4,7 5 6 10
Lítrar
gass
80 210 230 260 430 530 630 850 1000 1060 1260 2120
Stærð hylkis í
lítrum
15 20 21,3* 21,3** 50
Lítrar gass 3180 4200 3450 2900 10.600
Stærð búnta í lítrum 2x21,3* 10x50 12x50
Lítrar gass 6900 106.000 128.000
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Linde Gas
BOX 30193
10425 Stockholm
Svíþjóð
Framleiðendur
Linde Gas AS
Gamle Leirdals vei 2
NO-1081 Oslo
Noregur
Linde Gas SIA
Putnu iela 2
Ropazu region,
Zakumuiza,
LV-2133
Lettland
Oy Linde Gas Ab
Agantie 2
FI-11310 Riihimäki
Finnland
Linde Gas ehf
Breiðhöfða 11
IS-110 Reykjavík
Ísland
Linde Gas AB
Baltzar von Platens gata 4-6
SE-749 47 Enköping
Svíþjóð
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Danmörk Conoxia
Eistland CONOXIA
Finnland CONOXIA
Ísland CONOXIA
Lettland CONOXIA
Litháen CONOXIA
Noregur Conoxia
Svíþjóð Conoxia
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2021.
Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar:
Linde Gas ehf.
Breiðhöfða 11
110 Reykjavík
Sími: 577 3030
Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf er að finna á http://www.serlyfjaskra.is