Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Concerta - Forðatafla
Lyf fyrir menn
Concerta-image

Concerta - Forðatafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06BA04
ATC Heiti: Methylphenidatum
Norrænt Vörunúmer: 011489
Markaðsleyfishafi: Janssen-Cilag AB
Skráningardagsetning: 01.01.2003
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Við hverju Concerta er notað

Concerta er notað til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD):
• Það er notað hjá börnum 6 ára og eldri og fullorðnum.
• Það er aðeins notað eftir að meðferðir án lyfja hafa verið reyndar, t.d ráðgjöf og atferlismeðferð.
Ekki má nota Concerta til að meðhöndla athyglisbrest með ofvirkni hjá börnum yngri en 6 ára.

Hvernig Concerta verkar

Concerta bætir virkni ákveðinna hluta heilans sem eru vanvirkir. Lyfið getur hjálpað til við að bæta
athygli, einbeitingu og draga úr hvatvísi.

Lyfið er notað sem þáttur í meðferðaráætlun sem felst venjulega í:
• sálfræðilegri meðferð
• fræðslu
• félagslegri meðferð.
Einungis læknar sem hafa reynslu af hegðunarröskunum hjá börnum, unglingum eða fullorðnum ávísa
lyfinu. Ef þú ert fullorðin(n) og hefur ekki fengið meðferð áður gerir sérfræðingurinn próf til að
staðfesta að þú hafir verið með athyglisbrest með ofvirkni frá barnsaldri. Þó að ekki sé til lækning við
athyglisbresti með ofvirkni er hægt að ná tökum á honum með meðferðarúrræðum.

Um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD)

Börnum og unglingum með athyglisbrest með ofvirkni finnst erfitt:
• að sitja kyrr
• að einbeita sér.
Þau geta ekki gert að því að eiga erfitt með þetta.

Mörg börn og unglingar eiga í vandræðum með að vera kyrr og einbeita sér. Þegar um athyglisbrest
með ofvirkni er að ræða getur þetta þó valdið vandamálum í hversdagslífinu. Börn og unglingar með
athyglisbrest með ofvirkni geta átt erfitt með að læra og vinna heimavinnuna sína. Þeim finnst erfitt að
haga sér vel heima, í skólanum og annars staðar.

Fullorðnum með athyglisbrest með ofvirkni finnst oft erfitt að einbeita sér. Þeir finna oft fyrir
eirðarleysi, óþolinmæði og eftirtektarleysi. Þeim getur þótt erfitt að skipuleggja einkalíf og vinnu.

Ekki þarf að meðhöndla alla sjúklinga sem eru með athyglisbrest með ofvirkni með lyfi.

Athyglisbrestur með ofvirkni hefur ekki áhrif á greind.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Concerta inniheldur

Virka innihaldsefnið er metýlfenidathýdróklóríð.
• Concerta inniheldur 18 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Concerta inniheldur 27 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Concerta inniheldur 36 mg af metýlfenidathýdróklóríði.
• Concerta inniheldur 54 mg af metýlfenidathýdróklóríði.

Önnur innihaldsefni:
• Bútýlhýdroxýtólúen (E321), sellulósuasetat, hýprómellósi (E464), óþynnt fosfórsýra,
poloxamer 188, pólýetýlenoxíð 200 K og 7000 K, povidon K29-32, natríumklóríð, sterinsýra,
succinsýra, svart járnoxíð (E172), gult járnoxíð (E172) og rautt járnoxíð (E172, einungis í
27 mg og 54 mg töflum).
• Filmuhúð: Hýprómellósi (E464), mjólkursykureinhýdrat, títantvíoxíð (E171), triacetin, gult
járnoxíð (E172, einungis í 18 mg og 54 mg töflunum), rautt járnoxíð (E172, einungis í 54 mg
töflunum), svart járnoxíð (E172, einungis í 27 mg töflunum) og sterinsýra (einungis í 18 mg
töflunum).
• Glær húð: Carnaubavax, hýprómellósi (E464) og macrogol 400.
• Merkiblek: Svart járnoxíð (E172), hýprómellósi (E464) og própýlenglýkól.

Lýsing á útliti Concerta og pakkningastærðir

Concerta er fáanlegt í fjórum styrkleikum: 18 mg, 27 mg, 36 mg og 54 mg. Hver hylkislaga tafla er
auðkennd með áletrun:
• 18 mg: Gular, áletraðar „alza 18“ með svörtu bleki á annarri hliðinni.
• 27 mg: Gráar, áletraðar „alza 27“ með svörtu bleki á annarri hliðinni.
• 36 mg: Hvítar, áletraðar „alza 36“ með svörtu bleki á annarri hliðinni.
• 54 mg: Rauðbrúnar, áletraðar „alza 54“ með svörtu bleki á annarri hliðinni.

Lyfið er fáanlegt í glösum með 28 eða 30 forðatöflum. Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu
markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Janssen-Cilag AB
Box 4042
SE-169 04 Solna
Svíþjóð

Framleiðandi
Janssen Pharmaceutica N.V., Turnhoutseweg 30, B-2340 Beerse, Belgíu.

Hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er upplýsinga um lyfið:
Vistor hf. Sími: 535 7000.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.