Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Colrefuz - Tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Colrefuz - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: M04AC01
ATC Heiti: colchicine
Norrænt Vörunúmer: 177937
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.10.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Colrefuz inniheldur virka efnið colchicin. Það tilheyrir flokki þvagsýrugigtarlyfja og er notað til að
koma í veg fyrir eða meðhöndla þvagsýrugigtarkast.

Þvagsýrugigtarköst hjá fullorðnum
Colrefuz er notað við skammtímameðferð fullorðinna vegna bráðrar þvagsýrugigtar, svonefndra
þvagsýrugigtarkasta, og til að koma í veg fyrir að þvagsýrugigt taki sig upp aftur.
Þvagsýrugigt eykur þéttni þvagsýru í blóði. Slíkt getur leitt til útfellingar þvagsýrukristalla í liðvökva.
Colchicin hamlar bólguviðbrögðunum sem þetta veldur.

Arfgeng miðjarðarhafssótt
Colrefuz er auk þess ætlað til að meðhöndla arfgenga miðjarðarhafssótt til að koma í veg fyrir hitaköst
og mýlildi (óeðlilega úrfellingu próteina í vefjum og líffærum).

Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Colrefuz inniheldur
- Virka innihaldsefnið er colchicin. Hver tafla inniheldur 0,5 mg af colchicini.
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, örkristallaður sellulósi, forhleypt sterkja,
natríumsterkjuglýkólat, magnesíumsterat.

Lýsing á útliti Colrefuz og pakkningastærðir
Colrefuz 0,5 mg töflur eru hvítar til beinhvítar, kringlóttar, 6 mm í þvermál, flatar töflur, merktar með
„0.5“ á annarri hliðinni.

Pakkningastærðir:
Þynnupakkningar með 20, 30, 50 og 100 töflum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5

2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Teva Czech Industries s.r.o
Ostravská
747 70 Opava-Komárov
Tékkland

Balkanpharma - Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str.
2600 Dupnitsa
Búlgaria

Umboð á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2025.