Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Ciprofloxacin Alvogen - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Ciprofloxacin Alvogen - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01MA02
ATC Heiti: Ciprofloxacinum
Norrænt Vörunúmer: 169751
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.06.2009
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Ciprofloxacin Alvogen er sýklalyf í flokki flúórókínólóna. Virka efnið er cíprófloxacín. Cíprófloxacín
drepur bakteríur sem valda sýkingum. Það verkar aðeins gegn ákveðnum bakteríustofnum.

Fullorðnir

Ciprofloxacin Alvogen eru notað hjá fullorðnum til að meðhöndla eftirfarandi bakteríusýkingar:

• öndunarfærasýkingar
• langvarandi eða endurtekna eyrna- eða skútabólgu
• þvagfærasýkingar
• sýkingar í eistum
• sýkingar í kynfærum kvenna
• sýkingar í meltingarfærum og innan kviðar
• sýkingar í húð og mjúkvefjum
• sýkingar í beinum og liðum
• til að meðhöndla sýkingar hjá sjúklingum með lágt gildi hvítra blóðkorna (daufkyrningafæð)
• til að fyrirbyggja sýkingar hjá sjúklingum með lágt gildi hvítra blóðkorna (daufkyrningafæð)
• til að koma í veg fyrir sýkingar af völdum Neisseria meningitidis
• innöndunarmiltisbrandur

Ef þú ert með alvarlega sýkingu eða sýkingu af völdum fleiri en einnar bakteríutegundar, getur verið að þú
fáir annað sýklalyf til viðbótar við Ciprofloxacin Alvogen.

Börn og unglingar

Ciprofloxacin Alvogen er notað handa börnum og unglingum undir sérstöku eftirliti sérfræðings til að
meðhöndla eftirfarandi sýkingar:

• sýkingar í lungum og berkjusýkingar hjá börnum og unglingum með slímseigjusjúkdóm (cystic
fibrosis)
• þvagfærasýkingu með fylgikvilla, þar með talið sýkingu sem hefur náð til nýrna (nýra- og
skjóðubólga)
• innöndunarmiltisbrandur
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ciprofloxacin Alvogen inniheldur
Virka innihaldsefnið er cíprófloxacínhýdróklóríð.
Önnur innihaldsefni eru maíssterkja, örkristallaður sellulósi, krospóvídón, kísiltvíoxíðkvoða,
magnesíumsterat, hýprómellósi, makrógól 4000 og títantvíoxíð.

Lýsing á útliti Ciprofloxacin Alvogen og pakkningastærðir
250 mg töflur: Hvítar til beinhvítar, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur, með deiliskoru á annarri hliðinni og
merktar með „4“ á hinni.
500 mg töflur: Hvítar til beinhvítar, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur, með deiliskoru á annarri hliðinni og
merktar með „5“ á hinni.

Töflunum er pakkað í PVC/ál þynnur sem settar eru í öskjur.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland

Framleiðandi
Pharmathen S.A.
Dervenakion 6
Pallini 15351
Attikis
Grikkland

Ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið, vinsamlegast hafið þá samband við markaðsleyfishafa.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2026.

Ráðleggingar/læknisfræðilegar upplýsingar

Sýklalyf eru notuð við bakteríusýkingum. Þau eru óvirk gegn veirusýkingum.
Hafi læknirinn ávísað sýklalyfi, eru þau ætluð við þeirri sýkingu sem þú ert með.
Þrátt fyrir sýklalyfið geta vissar bakteríur lifað áfram eða vaxið. Þetta kallast ónæmi: sumar
sýklalyfjameðferðir verða árangurslausar.
Misnotkun sýklalyfja eykur ónæmi. Ef ekki er tekið tillit til eftirfarandi atriða er stuðlað að ónæmi
bakteríunnar og þar með dregst bati á langinn eða áhrif sýklalyfsins minnka:
- skammtastærð
- hve oft á að taka lyfið
- meðferðarlengd

Því er nauðsynlegt til að viðhalda áhrifum lyfsins með því að:
1 – Nota eingöngu sýklalyf þegar þau eru gefin samkvæmt lyfseðli.
2 – Fara nákvæmlega eftir fyrirmælum.
3 – Aldrei að nota sýklalyf sem gengur af án lyfseðils, jafnvel þótt þú ætlir að meðhöndla svipuð veikindi.
4 - Ekki gefa öðrum sýklalyf sem er ætlað þér, hugsanlega er það gagnslaust við sjúkdómi viðtakanda.
5 – Þegar meðferð er lokið skal skila lyfjaleifum í apótek til að tryggja að þeim sé fargað á réttan hátt.