Lyf fyrir menn

Ciflox - Eyrnadropar, dreifa
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: S02CA03
ATC Heiti: Hydrocortisonum og sýkingalyf
Norrænt Vörunúmer: 500188
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare A/S
Skráningardagsetning: 01.05.2021
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Ciflox inniheldur sýklalyf og nýrnahettubarkarhormón. Ciflox drepur bakteríur og dregur úr sýkingu.
Ciflox er notað til að meðhöndla bakteríusýkingar í eyrnagöngum og ytra eyra.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Ciflox er notað til að meðhöndla bakteríusýkingar í eyrnagöngum og ytra eyra.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ciflox 2 mg/ml / 10 mg/ml eyrnadropar, dreifa inniheldur - Virku innihaldsefnin: cíprófloxacín og hýdrókortisón. Hver ml af dreifu inniheldur
cíprófloxacín hýdróklóríð sem jafngildir 2 mg af cíprófloxacíni og 10 mg af hýdrókortisóni.
- Önnur innihaldsefni: Bensýlalkóhól (rotvarnarefni, sjá kafla 2 „Ciflox inniheldur
bensýlalkóhól“), pólýsorbat 20, natríumasetat þríhýdrat, ísediksýra, fosfólípón 90H,
natríumklóríð, pólývínýlalkóhól og hreinsað vatn.
Lýsing á útliti Ciflox og pakkningastærðir
Ciflox er örlítið seigfljótandi, hvít eða beinhvít dreifa, sem er fáanlegt í 10 ml glasi með skrúfloki úr
pólýprópýleni.
Pakkningin inniheldur einnig dropateljara sem pakkað er sér og samanstendur af pípettu úr
pólýetýleni, pólýprópýlenloki og gúmmíbelg úr latexi.
Ciflox er tilbúið til notkunar þegar búið er að festa dropateljarann á glasið.
Markaðsleyfishafi
Novartis Healthcare A/S
Kay Fiskers Plads 10
2300 København S
Danmörk
Framleiðandi
Novartis Pharma GmbH
Roonstrasse 25
90429 Nürnberg
Þýskaland
Siegfried El Masnou S.A.
Camil Fabra 58
08320 El Masnou
Barcelona, Spánn
Novartis Farmacéutica, S.A.
Gran Via de les Corts Catalanes, 764
08013 Barcelona
Spánn
Umboð á Íslandi
Vistor ehf.
Sími 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.