Lyf fyrir menn

Cerazette - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03AC09
ATC Heiti: Desogestrelum
Norrænt Vörunúmer: 518332
Markaðsleyfishafi: N.V. Organon
Skráningardagsetning: 01.01.2001
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Cerazette er notað til að koma í veg fyrir óæskilega þungun. Cerazette inniheldur lítið magn af
kvenhormóninu desógestreli, sem er prógestógen. Því er Cerazette prógestógen-pilla. Öfugt við
samsettar getnaðarvarnartöflur innihalda prógestógen-pillur ekki östrógen.
Flestar prógestógen-pillur koma í veg fyrir að sæðisfrumur komist inn í legið. Prógestógen-pillur koma
ekki alltaf í veg fyrir þroska eggsins en það er aðalverkun samsettra getnaðarvarnartaflna. Cerazette er
frábrugðið flestum prógestógen-pillum því það inniheldur hormónaskammt sem er nægilega mikill til
þess að koma í veg fyrir að eggið þroskist. Því er Cerazette áhrifamikil getnaðarvörn.
Andstætt samsettum getnaðarvarnartöflum geta konur sem þola ekki östrógen og konur með barn á
brjósti notað Cerazette. Ókosturinn er hins vegar sá að óreglulegar blæðingar geta komið fram við
notkun Cerazette. Einnig geta blæðingar stöðvast.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Cerazette inniheldur - Virka innihaldsefnið: desógestrel (75 míkróg).
- Önnur innihaldsefni: vatnsfrí kísilkvoða, α-tókóferól, maíssterkja, póvídon, sterínsýra,
hýprómellósi, makrógól 400, talkúm, títantvíoxíð (E171) mjólkursykurseinhýdrat (sjá einnig
„Cerazette inniheldur laktósa“ í kafla 2).
Lýsing á útliti og pakkningastærðir
Á hverri þynnupakkningu eru 28 hvítar, kringlóttar filmuhúðaðar töflur. Töflurnar eru merktar með
KV fyrir ofan 2 á annarri hliðinni og ORGANON* á hinni hliðinni. Hver pakkning af Cerazette
inniheldur 1, 3, 6 eða 13 þynnupakkningar. Hver þynnupakkning er í skammtapoka.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
N.V. Organon, Kloosterstraat 6, 5349 AB Oss, Holland.
Umboð
Vistor hf.
Sími: 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2021.