Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Centyl með kaliumklorid - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Centyl með kaliumklorid-image

Centyl með kaliumklorid - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C03AB01
ATC Heiti: Bendroflumethiazidum og kalíum
Norrænt Vörunúmer: 192617
Markaðsleyfishafi: Karo Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.12.1972
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Centyl med kaliumklorid tafla er græn, hylkjalaga, kúpt og filmuhúðuð.

Centyl med kaliumklorid lækkar blóðþrýsting og eykur þvagútskilnað.
Centyl med kaliumklorid eykur saltútskilnað um nýru. Þvagmagn verður meira og útskilnaður kalíums
(eitt af söltunum sem eru í blóðinu) eykst. Lyfið inniheldur kalíum til að minnka hættu á kalíumskorti.

Hægt er að nota Centyl med kaliumklorid:
- við hækkuðum blóðþrýstingi
- við vökvasöfnun (bjúg)
- til að fyrirbyggja endurtekna nýrnasteina
- við flóðmigu (sjúklegum þorsta - diabetes insipidus).

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en
tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á
merkimiða frá lyfjabúð
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Centyl med kaliumklorid filmuhúðaðar töflur innihalda:

- Virku innihaldsefnin eru: 2,5 mg bendróflúmetíazíð og kalíumklóríð 573 mg
- Önnur innihaldsefni eru: Etýlsellulósi, sterýlalkahól, magnesíumsterat, glýseról, hýprómellósi 15
cps, hýprómellósi 3 cps pólýsorbat 20, sítrónusýrueinhýdrat, sakkarínnatríum, talkúm, kínólíngult
(E 104), patent blue V (E 131), títantvíoxíð (E 171).

Lýsing á útliti Centyl med kaliumklorid og pakkningastærðir

Pakkningastærðir: 100 og 250 filmuhúðaðar töflur.
Glas með þurrkefnispokum í lokinu.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Karo Pharma AB
Box 16184
103 24 Stockholm
Svíþjóð

Framleiðandi
allphamed PHARBIL Arzneimittel GmbH
Hildebrandstr. 10-12
37081 Göttingen
Þýskaland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is


Fylgiseðillinn var síðast uppfærður í október 2025.