Lyf fyrir menn

Canesten - Krem
Lausasölulyf
ATC Flokkur: D01AC01
ATC Heiti: Clotrimazolum
Norrænt Vörunúmer: 590497
Markaðsleyfishafi: Bayer AB
Skráningardagsetning: 01.12.1982
Magn
Canesten er sveppaeyðandi lyf, sem verkar gegn mörgum tegundum örvera og er m.a. virkt gegn
húðsveppum, ger- og myglusveppum.
Canesten er notað við sveppasýkingum í húð (á höndum, fótum, öllum skrokknum og í húðfellingum).
Einnig má nota Canesten til meðhöndlunar á sveppasýkingu í leggöngum og á ytri kynfærum.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni í leggöngum versna eða lagast ekki innan 7 daga og innan
4 vikna við meðferð á sýkingu í húð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Canesten inniheldur - Virka efnið er klótrímazól. 1 g krem inniheldur 10 mg klótrímazól.
- Önnur innihaldsefni eru sorbítansterat, pólýsorbat, cetýlpalmitat, cetosterýlalkóhól,
oktýldódekanól, bensýlalkóhól, hreinsað vatn.
Lýsing á útliti Canesten og pakkningastærðir
Útlit:
Canesten 10 mg/g krem: Hvítt ógegnsætt krem.
Pakkningastærðir:
Canesten 10 mg/g krem: 20 g í áltúpu.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi:
Bayer AB
Box 606
169 26 Solna
Svíþjóð
Framleiðandi:
Kern Pharma SL
E-08228 Terrassa (Barcelona)
Spáni.
eða
GP Grenzach Produktions GmbH
Emil Barell-Strasse 7
79639 Grenzach-Wyhlen
Þýskalandi
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2021.