Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Brieka - Hart hylki
Lyf fyrir menn
Brieka-image

Brieka - Hart hylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02BF02
ATC Heiti: pregabalin
Norrænt Vörunúmer: 083275
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.10.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Brieka tilheyrir flokki lyfja sem eru notuð við meðferð á flogaveiki, taugaverkjum og almennri
kvíðaröskun hjá fullorðnum.

Útlægir og miðlægir taugaverkir: Brieka er notað til meðhöndlunar á langvarandi verkjum af
völdum taugaskemmda. Fjöldi mismunandi sjúkdóma getur valdið útlægum taugaverkjum, svo sem
sykursýki eða ristill. Verkjatilfinningunni hefur verið lýst sem: hita, sviða, slætti, skoti, sting, nístandi,
krampa, verk, dofa, tilfinningaleysi, náladofa. Skapbreytingar, svefntruflanir og þróttleysi (þreyta) geta
einnig fylgt útlægum og miðlægum taugaverkjum og þeir geta haft áhrif á líkamlega og félagslega
virkni sem og almenn lífsgæði.

Flogaveiki: Brieka er notað til meðhöndlunar á sérstakri tegund af flogaveiki (staðflog með eða án
síðkominna alfloga) hjá fullorðnum. Læknirinn mun ávísa þér Brieka þegar núverandi meðferð dugar
ekki lengur til þess að ná tökum á flogaveikinni. Þú átt að taka Brieka sem viðbótarmeðferð við þá
meðferð sem þú ert þegar á. Brieka er ekki ætlað til að nota eitt sér og á alltaf að nota með öðrum
flogaveikilyfjum.

Almenn kvíðaröskun: Brieka er notað til meðhöndlunar á almennri kvíðaröskun. Einkenni almennrar
kvíðaröskunar eru langvarandi mikill kvíði og áhyggjur sem erfitt er að hafa stjórn á. Önnur einkenni
almennrar kvíðaröskunar geta verið eirðarleysi eða spenna, þreyta, einbeitingarskortur eða
minnisleysi, skapstyggð, vöðvaspenna eða svefnerfiðleikar. Þetta er frábrugðið daglegri streitu og
spennu.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Brieka inniheldur

- Virka innihaldsefnið er pregabalín. Hvert hart hylki inniheldur annaðhvort 25 mg, 75 mg,
150 mg, 225 mg eða 300 mg af pregabalíni.
- Önnur innihaldsefni eru: mannítól, samunnin sterkja (forhleypt sterkja og maíssterkja), talkúm,
gelatín, títantvíoxíð (E171) og svart blek (sem inniheldur gljálakk, svart járnoxíð (E172),
kalíumhýdroxíð). 75, 225 og 300 mg hylkin innihalda einnig rautt járnoxíð (E172).

Lýsing á útliti Brieka og pakkningastærðir

25 mg hylki Hvít hörð hylki (14,5 mm), með áletruninni „PGB 25“ á bolnum.
75 mg hylki
Hvít og appelsínugul hörð hylki (14,5 mm), með áletruninni „PGB 75“ á
bolnum.
150 mg hylki Hvít hörð hylki (18 mm), með áletruninni „PGB 150“ á bolnum.
225 mg hylki
Hvít og fölappelsínugul hörð hylki (19,5 mm), með áletruninni „PGB 225“
á bolnum.
300 mg hylki
Hvít og appelsínugul hörð hylki (21,5 mm), með áletruninni „PGB 300“ á
bolnum.

Brieka 25 mg, 75 mg og 225 mg eru fáanleg í átta pakkningastærðum gerðum úr PVC með
álþynnubaki: 14, 21, 30, 56, 60, 84, 90 og 100 hylki.

Brieka 150 mg eru fáanleg í fimm pakkningastærðum gerðum úr PVC með álþynnubaki: 14, 30, 56,
60 og 100 hylki.
Brieka 300 mg eru fáanleg í fjórum pakkningastærðum gerðum úr PVC með álþynnubaki: 14, 56, 60
og 100 hylki.

Til viðbótar eru Brieka fáanleg í plastglasi sem inniheldur 100 hylki.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Balkanpharma – Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str.
2600 Dupnitsa
Búlgaría

Umboðsaðili á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2024.