Lyf fyrir menn

Benylan - Mixtúra, lausn
Lausasölulyf
ATC Flokkur: R06AA02
ATC Heiti: Diphenhydraminum
Norrænt Vörunúmer: 000801
Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS
Skráningardagsetning: 01.05.1999
Magn
Benylan inniheldur efni (andhistamín) sem virkar hóstastillandi og dregur úr ofnæmiseinkennum.
Þú getur notað Benylan til meðferðar á
• Þurrum hósta
• Ofnæmi, einkum ofsakláða, frjókornaofnæmi og ofnæmiskvefi.
Hámarksverkun næst 2 - 2½ klst. eftir inntöku og verkunin varir í u.þ.b. 4 – 8 klst.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki. Verið getur að læknirinn hafi ávísað
lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja
fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Benylan inniheldur - Virka innihaldsefnið er: Dífenhýdramínhýdróklóríð.
- Önnur innihaldsefni eru: Natríumsítrat, mentól, sítrónusýrueinhýdrat, glýseról, etanól 96%,
hreinsað vatn, glúkósi (fljótandi), karbómer, ammoníumklóríð, Ponceau 4R (E124). Sætuefni:
Súkrósi, sakkarínnatríum. Rotvarnarefni: Natríumbensóat (E211). Bragðefni:
Hindberjabragðefni. Litarefni: Karamel (E150).
Lýsing á útliti Benylan og pakkningastærðir
Útlit
Benylan 2,8 mg/ml er tær og rauðleit lausn.
Pakkningastærðir
Glas með 125 ml.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
McNeil Denmark ApS, Transformervej 14, 2860 Søborg, Danmörk.
Framleiðandi
Delpharm Orléans, 5 Avenue de Concyr, 45071 Orleans Cedex 2, Frakkland.
Umboð á Íslandi
Vistor hf. Sími: 535 7000.
Fylgiseðillinn var síðast uppfærður í desember 2024.