Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Attentin - Tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Attentin - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06BA02
ATC Heiti: dexamfetamine
Norrænt Vörunúmer: 027017
Markaðsleyfishafi: Medice Arzneimittel Pütter GmbH & Co. KG
Skráningardagsetning: 01.08.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hvað Attentin er
Attentin töflur innihalda virka efnið dexamfetaminsúlfat.

Attentin er geðörvandi lyf. Það bætir virkni í hluta heilans. Þetta lyf getur bætt athygli, einbeitingu og
dregið úr hvatvísri hegðun.

Til hvers það er notað
Attentin er notað til að meðhöndla athyglisbrest með ofvirkni (ADHD).

• Það er notað fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-17 ára.
• Það er ekki ætlað til notkunar hjá öllum börnum með ADHD.
• Það er eingöngu notað þegar annað lyf sem kallast methylphenidat hefur ekki virkað nógu vel.
• Eingöngu á að nota það sem hluta af meðferðaráætlun sem venjulega felur í sér sálfræðileg,
menntunarleg og félagsleg úrræði.

Meðferð með Attentin má eingöngu vera hafin af og vera undir umsjón sérfræðings í
hegðunarvandamálum hjá börnum og unglingum.

Þú verður að ræða við lækninn ef barninu líður ekki betur eftir mánuð eða ef því líður verr. Læknirinn
gæti ákveðið að þörf sé á annarri meðferð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Attentin inniheldur

- Virka innihaldsefnið er dexamfetaminsúlfat
Attentin 5 mg:
Hver tafla inniheldur 5 mg af dexamfetaminsúlfati.
Attentin 10 mg:
Hver tafla inniheldur 10 mg af dexamfetaminsúlfati.
Attentin 20 mg:
Hver tafla inniheldur 20 mg af dexamfetaminsúlfati.

- Önnur innihaldsefni eru:
ísómalt (E953), sjá kafla 2
magnesíumsterat
krospóvidón í Attentin 5 mg
gult járnoxíð (E172) í Attentin 10 mg
rautt járnoxíð (E172) í Attentin 20 mg

Lýsing á útliti Attentin og pakkningastærðir

Attentin 5 mg töflur
Hvítar, kringlóttar, smáralauf-laga töflur með tveimur deiliskorum sem mynda kross á annarri hliðinni
og með tveimur deililínum sem mynda kross með upphleyptu „S“ á hverjum fjórðungi á hinni hliðinni.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
Pakkningastærðir: 20, 28, 30, 40, 50, 56, 98 og 100 töflur.
Öskjur innihalda töflur pakkaðar í PVC/PE/PVdC álþynnur.

Attentin 10 mg
Gular, kringlóttar, smáralauf-laga töflur með tveimur deiliskorum sem mynda kross á annarri hliðinni
og með tveimur deililínum sem mynda kross með upphleyptu „M“ á hverjum fjórðungi á hinni
hliðinni.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
Pakkningastærðir: 20, 28, 30, 40, 48, 50 og 56 töflur.
Öskjur innihalda töflur pakkaðar í PVC/PVdC álþynnur.

Attentin 20 mg
Rauðleitar, kringlóttar, smáralauf-laga töflur með tveimur deiliskorum sem mynda kross á annarri
hliðinni og með tveimur deililínum sem mynda kross með upphleyptu „L“ á hverjum fjórðungi á hinni
hliðinni.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
Pakkningastærðir: 20, 28, 30, 40 og 56 töflur.
Öskjur innihalda töflur pakkaðar í PVC/PVdC álþynnur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Medice Arzneimittel Pütter GmbH & Co. KG
Kuhloweg 37
58638 Iserlohn
Þýskaland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is


Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Austurríki: Philla 5 mg/10 mg/20 mg
Belgía: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg
Bretland: Amfexa 5 mg/10 mg/20 mg tablet
Danmörk: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg
Eistland: Tentin 5 mg/10 mg/20 mg

Finnland: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg
Frakkland: Tentin 5 mg/10 mg/20 mg
Ísland: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg
Ítalía: Amfexa 5 mg/10 mg/20 mg
Lúxemborg: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg
Noregur: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg
Pólland: Tentin 5 mg/10 mg/20 mg
Portúgal: Tentin 5 mg/10 mg/20 mg
Spánn: Tentin 5 mg/10 mg/20 mg
Svíþjóð: Attentin 5 mg/10 mg/20 mg

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2025.