Lyf fyrir menn

Atorvastatin Xiromed - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C10AA05
ATC Heiti: Atorvastatinum
Norrænt Vörunúmer: 146827
Markaðsleyfishafi: Medical Valley with subfirm Xiromed
Skráningardagsetning: 01.08.2021
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Atorvastatin Xiromed tilheyrir flokki lyfja sem heita statín og eru lyf til að lækka lípíðmagn í blóði
(blóðfitu).
Atorvastatin Xiromed er notað til að lækka blóðfitu (lípíð) eins og kólesteról og þríglýseríð, þegar
mataræði sem stuðlar að lækkun á kólesteróli og breyttir lifnaðarhættir hafa ekki nægt til árangurs.
Atorvastatin Xiromed er einnig notað til að draga úr áhættu hjartasjúkdóma hjá einstaklingum í
áhættuhópi, jafnvel þótt kólesterólgildi séu eðlileg. Halda skal áfram að neyta fæðis sem stuðlar að
lækkun kólesteróls meðan á meðferð stendur.
(blóðfitu).
Atorvastatin Xiromed er notað til að lækka blóðfitu (lípíð) eins og kólesteról og þríglýseríð, þegar
mataræði sem stuðlar að lækkun á kólesteróli og breyttir lifnaðarhættir hafa ekki nægt til árangurs.
Atorvastatin Xiromed er einnig notað til að draga úr áhættu hjartasjúkdóma hjá einstaklingum í
áhættuhópi, jafnvel þótt kólesterólgildi séu eðlileg. Halda skal áfram að neyta fæðis sem stuðlar að
lækkun kólesteróls meðan á meðferð stendur.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Atorvastatin Xiromed inniheldur - Virka innihaldsefnið er atorvastatin.
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg af atorvastatini (sem
atorvastatinkalsíumþríhýdrat). Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 20 mg af atorvastatini
(sem atorvastatinkalsíumþríhýdrat). Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 40 mg af
atorvastatini (sem atorvastatinkalsíumþríhýdrat). Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 80 mg
af atorvastatini (sem atorvastatinkalsíumþríhýdrat).
- Önnur innihaldsefni eru:
Laktósaeinhýdrat, örkristallaður sellulósi, kalsíumkarbónat E170, copovidon, krospóvidon gerð B,
natríumkroskarmellósa, natríumlaurilsúlfat, vatnsfrí kísilkvoða, talkúm og magnesíumsterat.
Innihaldsefni í filmuhúðinni: glýserýl ein-og tvícaprýlocaprat, pólývinýlalkóhól, talkúm, títandíoxíð
og makrógól (PEG) ígrædd pólývinýl alkóhólfjölliða
Lýsing á útliti Atorvastatin Xiromed og pakkningastærðir
10 mg: Atorvastatin Xiromed filmuhúðaðar töflur eru hvítar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar
töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og merktar „10” á hinni hliðinni. Stærð hverrar töflu er u.þ.b.
7,0 mm.
20 mg: Atorvastatin Xiromed filmuhúðaðar töflu eru hvítar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar
töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og merktar „20” á hinni hliðinni. Stærð hverrar töflu er u.þ.b.
9,0 mm.
40 mg: Atorvastatin Xiromed filmuhúðaðar töflu eru hvítar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar
töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og merktar „40” á hinni hliðinni. Stærð hverrar töflu er u.þ.b.
11,0 mm.
80 mg: Atorvastatin Xiromed filmuhúðaðar töflu eru hvítar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar
töflur með deiliskoru á annarri hliðinni og merktar „80” á hinni hliðinni. Stærð hverrar töflu er u.þ.b.
13,0 mm.
Filmuhúðaðar Atorvastatin Xiromed töflur fást í PVC-PE-PVDC/álþynnupakkingum og stefnuvirkri
pólýamíð-ál-pólývínylklóríð (PVC) / álþynnu. Pakkningastærðir með 4, 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50,
56, 84, 90, 98 og 100 filmuhúðaðar töflur.
Atorvastatin Xiromed filmuhúðaðar töflur fást í HDPE glösum. Pakkningastærðir með 105 og 112
filmuhúðuðum töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Medical Valley með dótturfyrirtækinu Xiromed
Brädgårdsvägen 28
236 32 Höllviken
Svíþjóð
Framleiðandi
Laboratorios Liconsa
S.A Avda.
Miralcampo 7
Poligono Industrial Miralcampo
19200-Azuqueca de Henares
Guadalajara
Spánn
Umboðsmaður á Íslandi
Acare ehf.
Síðumúla 28
108 Reykjavík
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
- Danmörk: Atorvastatin Xiromed
- Ísland: Atorvastatin Xiromed
- Noregur: Atorvastatin Xiromed
- Svíþjóð: Atorvastatin Xiromed
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður