Lyf fyrir menn

Arcoxia - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: M01AH05
ATC Heiti: Etoricoxibum
Norrænt Vörunúmer: 011207
Markaðsleyfishafi: N.V. Organon
Skráningardagsetning: 01.10.2002
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hvað er Arcoxia?
• Arcoxia inniheldur virka efnið etorícoxíb. Arcoxia tilheyrir flokki lyfja sem kallast sértækir COX-
2 hemlar. Þeir tilheyra flokki lyfja sem kallast bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki eru sterar
(NSAIDs).
• Við hverju er Arcoxia notað?
• Arcoxia stuðlar að því að draga úr verk og þrota (bólgu) í liðum og vöðvum hjá fólki sem er 16 ára
eða eldri og eru með slitgigt, liðagigt, hryggikt og þvagsýrugigt.
• Arcoxia er einnig notað við meðalslæmum verkjum eftir tannaðgerð hjá fólki sem er 16 ára eða
eldra.
Hvað er slitgigt?
Slitgigt er sjúkdómur í liðum. Hún er af völdum hægfara eyðingar á brjóski sem klæðir beinendana.
Þetta veldur þrota (bólgu), sársauka, eymslum, stífleika og hreyfihömlun.
Hvað er liðagigt?
Liðagigt er langvinnur bólgusjúkdómur í liðum sem veldur sársauka, stífleika, bólgumyndun og
vaxandi hreyfihömlun í þeim liðum sem hún hefur áhrif á. Hún getur líka valdið bólgu í öðrum
líkamshlutum.
Hvað er þvagsýrugigt?
Þvagsýrugigt er sjúkdómur með bráðum, endurteknum, mjög kvalarfullum bólguköstum og roða í
liðum. Þvagsýrugigt stafar af uppsöfnun þvagsýrukristalla í liðnum.
Hvað er hryggikt?
Hryggikt er bólgusjúkdómur í hrygg og stórum liðum.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Arcoxia inniheldur • Virka innihaldsefnið er etorícoxíb. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 30, 60, 90 eða 120 mg af
etorícoxíbi.
• Önnur innihaldsefni eru:
Kjarni: kalsíumhýdrógenfosfat (vatnsfrítt), natríumkroskarmellósi, magnesíumsterat, örkristallaður
sellulósi.
Töfluhúð: carnauba vax, laktósaeinhýdrat, hýprómellósi, títantvíoxíð (E171), tríacetín. 30 mg,
60 mg og 120 mg töflurnar innihalda einnig gult járnoxíð (E172, litarefni) og indígótín (E132
litarefni).
Lýsing á útliti Arcoxia og pakkningastærðir
Arcoxia filmuhúðaðar töflur eru fáanlegar í fjórum styrkleikum:
30 mg blágrænar, eplalaga, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur merktar “ACX 30” á annarri hliðinni og
“101” á hinni.
60 mg dökkgrænar, eplalaga, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur merktar “ARCOXIA 60” á annarri hliðinni
og “200” á hinni hliðinni.
90 mg hvítar, eplalaga, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur merktar “ARCOXIA 90” á annarri hliðinni og
“202” á hinni hliðinni.
120 mg ljósgrænar, eplalaga, tvíkúptar filmuhúðaðar töflur merktar “ARCOXIA 120” á annarri
hliðinni og “204” á hinni hliðinni.
Pakkningastærðir
30 mg:
Pakkningastærðir eru 2, 7, 14, 20, 28, 49, 98 töflur eða fjölpakkning sem inniheldur 98 (2 pakka með
49) töflur í þynnupakkningum.
60 mg:
Pakkningastærðir eru 2, 5, 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50, 84, 98, 100 töflur eða fjölpakkning sem inniheldur
98 (2 pakka með 49) töflur í þynnupakkningum; eða 30 eða 90 töflur í glösum með ílátum sem
innihalda þurrkefni. Þurrkefnið (eitt eða tvö ílát) í glasinu er notað til að halda raka frá töflunum, má
ekki gleypa.
90 mg:

120 mg:
Pakkningastærðir eru 2, 5, 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50, 84, 100 töflur eða fjölpakkning sem inniheldur 98
(2 pakka með 49) töflur í þynnupakkningum; eða 30 eða 90 töflur í glösum með ílátum sem innihalda
þurrkefni. Þurrkefnið (eitt eða tvö ílát) í glasinu er notað til að halda raka frá töflunum, má ekki
gleypa.
60, 90 og 120 mg
Ál/álþynnupakkningar (stakir skammtar) í pakkningum með 5, 50 eða 100 töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
N.V. Organon, Kloosterstraat 6, 5349 AB Oss, Holland
Framleiðandi
Merck Sharp & Dohme B.V., Waarderweg 39, 2031 BN Haarlem, Holland
Organon Heist bv, Industriepark 30, 2220 Heist-op-den-Berg, Belgía
Vianex S.A (eingöngu fyrir Grikkland), 15th Km Marathonos Ave., 15351 Pallini Attikis, Athens,
Grikkland
Umboð á Íslandi
Vistor hf.
Sími: 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2024.
Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is