Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Amlodipin Zentiva - Tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Amlodipin Zentiva - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C08CA01
ATC Heiti: Amlodipinum
Norrænt Vörunúmer: 380959
Markaðsleyfishafi: Zentiva k.s.
Skráningardagsetning: 01.02.2024
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Amlodipin Zentiva inniheldur virka efnið amlódipín, sem tilheyrir flokki lyfja sem nefnist
kalsíumgangalokar.

Amlodipin Zentiva er notað til að meðhöndla of háan blóðþrýsting og tiltekna tegund af brjóstverk
sem nefnist hjartaöng (angina pectoris), en sjaldgæf gerð hans er æðakrampaöng (Prinzmetals angina)
eða breytileg hjartaöng.

Hjá sjúklingum með of háan blóðþrýsting verkar lyfið með því að slaka á æðum svo blóðið eigi
greiðari leið gegnum þær. Hjá sjúklingum með hjartaöng verkar Amlodipin Zentiva með því að bæta
blóðflæði til hjartavöðvans, sem þá fær meira súrefni svo hjartaöng er afstýrt. Lyfið slær ekki
tafarlaust á brjóstverk af hjartaöng.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Amlodipin Zentiva inniheldur

‒ Virka innihaldsefnið er amlódipín besýlat
Amlodipine Zentiva 2,5 mg töflur: Hver tafla inniheldur amlódipín besýlat sem jafngildir 2,5 mg
af amlódipíni.
Amlodipin Zentiva 5 mg töflur: Hver tafla inniheldur amlódipín besýlat sem jafngildir 5 mg af
amlódipíni.
Amlodipin Zentiva 10 mg töflur: Hver tafla inniheldur amlódipín besýlat sem jafngildir 10 mg af
amlódipíni.
‒ Önnur innihaldsefni eru örkristallaður sellulósi (E460), kalsíumhýdrógenfosfattvíhýdrat,
natríumsterkjuglýkólat A, magnesíumsterat (E572).

Lýsing á útliti Amlodipin Zentiva og pakkningastærðir

Amlodipine Zentiva 2,5 mg töflur: Hvítar eða næstum hvítar tvíkúptar töflur, u.þ.b. 5 mm í þvermál.
Amlodipin Zentiva 5 mg töflur: Hvítar eða næstum hvítar aflangar töflur, u.þ.b. 9x4 mm að stærð, með
deiliskoru á annarri hliðinni og merktar með „A“ vinstra megin við deiliskoru og „5“ hægra megin.
Amlodipin Zentiva 10 mg töflur: Hvítar eða næstum hvítar aflangar töflur, u.þ.b. 12x6 mm að stærð,
með deiliskoru á annarri hliðinni og merktar með „A“ vinstra megin við deiliskoru og „10“ hægra
megin.
Töflunni má skipta í jafna skammta.

Hvítar PVC/álþynnur eða hvítar PVC/PVDC/álþynnur.
Pakkningastærðir: 28, 30, 84, 90, 100 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Zentiva, k.s.
U kabelovny 130
Dolní Měcholupy
10237 Prague 10
Tékkland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Tékkland: Amlodipin Zentiva k.s.
Danmörk, Ísland, Noregur, Svíþjóð: Amlodipin Zentiva

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júlí 2023.