Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Amitriptylin Abcur - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Amitriptylin Abcur-image

Amitriptylin Abcur - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06AA09
ATC Heiti: Amitriptylinum
Norrænt Vörunúmer: 398565
Markaðsleyfishafi: Abcur AB
Skráningardagsetning: 01.12.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Amitriptylin Abcur tilheyrir flokki lyfja sem nefnast þríhringlaga þunglyndislyf.

Lyfið er notað til:
• meðferðar við þunglyndi hjá fullorðnum (alvarlegum þunglyndislotum)
• meðferðar við taugaverkjum hjá fullorðnum
• fyrirbyggjandi meðferðar við þrálátum spennuhöfuðverk hjá fullorðnum
• fyrirbyggjandi meðferðar við mígreni hjá fullorðnum
• meðferðar við næturvætu hjá börnum 6 ára og eldri, aðeins þegar búið er að útiloka
líffærameinafræðilegar orsakir, þ.m.t. hryggrauf (spina bifida) og tengda sjúkdóma, og engin
svörun hefur fengist við neinni annarri meðferð með eða án lyfja, þ.m.t. vöðvaslakandi lyfja
og desmópressíns. Lyfinu skal aðeins ávísað af læknum með sérfræðiþekkingu í meðferð
sjúklinga með þráláta næturvætu.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Amitriptylin Abcur inniheldur

- Virka innihaldsefnið er amitriptylín. Hver tafla inniheldur 10, 25 eða 50 mg af amitriptýlíni
(sem amitriptýlínhýdróklóríð).
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, maíssterkja, póvídón, magnesíumsterat, talkúm,
pólývínýlalkólhól, makrógól, títantvíoxíð (E171) og járnoxíð (E172).

Lýsing á útliti Amitriptylin Abcur og pakkningastærðir
Amitriptylin Abcur 10 mg er ljósbleik, kringlótt, tvíkúpt, filmuhúðuð tafla án upphleyptrar merkingar.
Töflustærðin er 7 x 3,4 mm.
Amitriptylin Abcur 25 mg er bleik, kringlótt, tvíkúpt, filmuhúðuð tafla án upphleyptrar merkingar.
Töflustærðin er 7 x 3,4 mm.
Amitriptylin Abcur 50 mg er brúnbleik, kringlótt, tvíkúpt, filmuhúðuð tafla án upphleyptrar merkingar.
Töflustærðin er 9 x 4,4 mm.

Amitriptylin Abcur er selt í:
Glasi: 20 og 100 töflur.
Þynnupakkningu: 20 og 100 töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Abcur AB
Box 1451
251 14 Helsingborg
Svíþjóð

Framleiðandi
Extractum Pharma Co. Ltd
6413 Kunfehértó. IV. Körzet 6
Ungverjaland


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2025.