Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Alprazolam WH - Tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Alprazolam WH - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05BA12
ATC Heiti: Alprazolamum
Norrænt Vörunúmer: 165397
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf
Skráningardagsetning: 15.01.2023
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Töflurnar innihalda alprazólam sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast benzódíazepín. Alprazólam er
talið auka virkni efnis sem er náttúrulega til staðar í heilanum og kallast GABA. Alprazolam WH er
notað sem skammtímameðferð gegn alvarlegri kvíðaröskun.
Aðeins skal nota alprazólam í stuttan tíma þar sem það getur verið ávanabindandi.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Alprazolam WH inniheldur

- Virka innihaldsefnið er alprazólam. Hver tafla inniheldur 0,25 mg, 0,5 mg eða 1 mg
alprazólam.

- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat (sjá kafla 2, „Alprazolam WH inniheldur laktósa“),
örkristallaður sellulósi, maíssterkja, natríumbensóat, dokusatnatríum, polývídon, vatnsfrí
kísilkvoða, natríumsterkjuglýkólat og magnesíumsterat.

- 0,5 mg töflurnar innihalda einnig litarefnið indígókarmín (E132) og erýtrósín (E127).

- 1 mg töflurnar innihalda einnig litarefnið indígókarmín (E132).

Lýsing á útliti Alprazolam WH og pakkningastærðir

0,25 mg töflurnar eru hvítar sporöskjulaga töflur og merktar „AL“ deiliskora „0.25“ á annarri hliðinni
og „G“ á hinni.

0,5 mg töflurnar eru bleikar sporöskjulaga töflur og merktar „AL“ deiliskora „0.5“ á annarri hliðinni
og „G“ á hinni.

1 mg töflurnar eru ljósbláar sporöskjulaga töflur og merktar „AL“ deiliskora „1.0“ á annarri hliðinni og
„G“ á hinni.

Alprazolam WH fæst í eftirfarandi pakkningastærðum:

0,25 mg:
20x1,50x1og 60x1tafla í þynnupakkningu, PVC/ál þynnur.
50 og 100 töflur í HDPE plastglasi með pólýetýlen skrúfloki.

0,5 mg:
20x1,50x1 og 60x1 tafla í þynnupakkningu, PVC/ál þynnur.
50 og 100 töflur í pólýprópýlen plastglasi með pólýetýlen loki.

1 mg:
20x1 tafla í þynnupakkningu, PVC/ál þynnur.
100 töflur í pólýprópýlen plastglasi með pólýetýlen loki.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Williams & Halls ehf.
Reykjavíkurvegi 62
220 Hafnarfjörður
Ísland

Framleiðandi
Towa Pharmaceutical Europe S.L.
C/ de Sant Martí, 75-97
08107 Martorelles, Barcelona
Spánn

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2026.