Lyf fyrir menn

Adalat Oros - Forðatafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C08CA05
ATC Heiti: Nifedipinum
Norrænt Vörunúmer: 059803
Markaðsleyfishafi: Bayer AB
Skráningardagsetning: 01.04.2013
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Adalat Oros hefur æðavíkkandi áhrif. Auðveldara verður fyrir hjartað að dæla blóði og dregur þannig
úr áreynslu hjartans.
Adalat Oros er notað við:
- hjartaöng
- háþrýstingi
- köldum og hvítum fingrum og/eða tám af völdum Raynaudsheilkennis (kuldatilfinning)
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
úr áreynslu hjartans.
Adalat Oros er notað við:
- hjartaöng
- háþrýstingi
- köldum og hvítum fingrum og/eða tám af völdum Raynaudsheilkennis (kuldatilfinning)
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Adalat Oros inniheldur - Virka innihaldsefnið er nífedipín.
- Önnur innihaldsefni (hjálparefni) eru: magnesíumsterat, natríumklóríð, cellulósaacetat,
hýprómellósi, rautt járnoxíð (E 172), pólýetýlenoxíð, makrógól 3350, hýdroxýprópýlcellulósi,
própýlenglýkól, svart litarefni, títantvíoxíð (E 171).
Lýsing á útliti Adalat Oros og pakkningastærðir
Adalat Oros 30 mg eru hringlaga, bleikar töflur, með gati eftir leysigeisla á annarri hlið, merktar
Adalat 30 á hinni hliðinni.
Adalat Oros 30 mg: 28, 98 forðatöflur
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Bayer AB
Box 606
SE-169 26 Solna
Framleiðandi
Bayer AG, 51368 Leverkusen, Þýskalandi.
Umboð á Íslandi
Icepharma hf
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júlí 2021.
Upplýsingar á íslensku eru á http://www.serlyfjaskra.is.