Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Activelle - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Activelle - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03FA01
ATC Heiti: Norethisteronum og estrógen
Norrænt Vörunúmer: 530741
Markaðsleyfishafi: Novo Nordisk A/S
Skráningardagsetning: 01.03.2000
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Activelle er samfelld, samsett kvenhormónauppbót. Það inniheldur tvær gerðir af kvenhormónum,
estrógen og prógestagen. Activelle er notað hjá konum eftir tíðahvörf, þegar að minnsta kosti 1 ár er liðið
frá síðustu náttúrulegu tíðablæðingum.

Activelle er notað til að:

Draga úr óþægindum sem koma fram eftir tíðahvörf
Við tíðahvörf dregur úr framleiðslu estrógens í líkamanum. Þetta getur valdið einkennum eins og hita í
andliti, á hálsi og brjósti („hitakóf“). Activelle dregur úr þessum einkennum eftir tíðahvörf. Þú munt
einungis fá ávísað Activelle ef einkennin hafa alvarleg áhrif á daglegt líf.

Koma í veg fyrir beinþynningu
Bein sumra kvenna verða brothætt eftir tíðahvörf (beinþynning). Þú átt að ræða alla fáanlega valkosti
við lækninn.
Ef þú ert í aukinni hættu á að beinbrotna vegna beinþynningar og þú getur ekki tekið önnur lyf, getur
þú notað Activelle til að koma í veg fyrir beinþynningu eftir tíðahvörf.

Activelle er gefið konum sem ekki hafa gengist undir legnám og hafa ekki haft tíðablæðingar í meira
en eitt ár.

Einungis takmörkuð reynsla er af meðferð kvenna eldri en 65 ára með Activelle.

Læknirinn getur hafa ákveðið aðra notkun eða aðrar skammtastærðir en tilgreindar eru í fylgiseðlinum.
Fylgið alltaf fyrirmælum læknisins og upplýsingum á merkimiðanum frá apótekinu.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Activelle inniheldur
– Virku innihaldsefnin eru estradíól 1 mg (sem estradíólhemíhýdrat) og noretísterónasetat 0,5 mg.
– Önnur innihaldsefni eru: laktósaeinhýdrat, maíssterkja, kópóvídón, talkúm og magnesíumsterat.
– Filmuhúðin inniheldur: hýprómellósa, þríasetín og talkúm.

Lýsing á útliti Activelle og pakkningastærðir
Filmuhúðuðu töflurnar eru hvítar, kringlóttar með 6 mm í þvermál. Töflurnar eru merktar með
NOVO 288 á annarri hliðinni og Novo Nordisk fyrirtækismerkinu (Apis naut) á hinni hliðinni.

Fáanlegar pakkningastærðir:
• 1x28 filmuhúðaðar töflur í dagatalspakkningum
• 3x28 filmuhúðaðar töflur í dagatalspakkningum

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Novo Nordisk A/S
Novo Allé
DK-2880 Bagsværd
Danmörk

Umboð á Íslandi:
Vistor hf.
sími: 535 7000

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins og Bretlandi
(Norður-Írlandi) undir eftirfarandi heitum:
Lönd Evrópska efnahagssvæðisins: Activelle – nema Bretland (Norður-Írland): Kliovance.

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2024.

Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar (www.lyfjastofnun.is).

NOTKUNARLEIÐBEININGAR

Leiðbeiningar um notkun dagatalspakkningar

1. Dagatalsskífan stillt
Skífunni í miðjunni er snúið þar til að litli plastfleygurinn vísar á vikudaginn.



2. Hvernig taka á töflu fyrsta dagsins
Brjótið plastfleyginn af og hvolfið fyrstu töflunni úr.



3. Snúið skífunni daglega
Næsta dag skal einfaldlega snúa ytri skífunni, sem er gegnsæ, réttsælis um 1 bil í sömu átt og örin
vísar. Hvolfið næstu töflu úr. Munið að taka aðeins 1 töflu einu sinni á dag.
Aðeins er hægt að snúa gegnsæju skífunni eftir að búið er að taka töfluna, sem er undir opinu,
úr pakkningunni.