Endoca CBD húð og varasalvi 20mg
ENDO4004
Product information
Short description
Endoca húð- og varasalvinn er lífrænn, vegan og dýravænn.
Fyrir utan mýkjandi áhrif á þurrar og sprungnar varir getur þessi mildi og nærandi varasalvi hentað prýðilega á litla staka þurrkubletti húðarinnar í andliti eða annars staðar á líkamanum.
Auk 20 mg af CBD og E vítamíns má m.a. finna í innihaldsformúlunni lífrænt ræktað býflugnavax, kókoshnetuolíu, sítrónuolíu, Cannabis sativa fræolíu, vanillurótarsterkju og hunang.
Verkferlar, notkun og geymsla.
Endoca CBD (Cannabinoid) er náttúruleg afurð úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis sativa jurt). Vörurnar eru hannaðar í GMP vottuðum rannsóknarstofum undir ströngu lyfjafræðilegu eftirliti. Í Endoca vörunum eru einungis náttúruleg innihaldsefni, glútenlaus og vegan, án erfðabreytinga, tilbúinna lyktarefna, litarefna, eiturefna, rotvarnarefna o.s.frv. Engin innihaldsefnanna styðjast við tilraunir á dýrum. Geymist á dimmum og köldum stað eða a.m.k. í vari fyrir miklum hita og sólarljósi. Notist einungis útvortis berist ekki í augu.
