Til baka

Valaciclovir Actavis

500 mg - 10 stk - Filmuhúðaðar töflur

Valaciclovir Actavis tilheyrir flokki lyfja er kallast veirusýkingalyf. Það virkar með því að drepa eða stöðva vöxt veira sem kallast herpes simplex. Valaciclovir Actavis er hægt að nota til að meðhöndla frunsur hjá heilbrigðum einstaklingum (sem ekki eru með skert...

1.700 kr.

vnr: 459926

Valaciclovir Actavis tilheyrir flokki lyfja er kallast veirusýkingalyf. Það virkar með því að drepa eða stöðva vöxt veira sem kallast herpes simplex.
Valaciclovir Actavis er hægt að nota til að meðhöndla frunsur hjá heilbrigðum einstaklingum (sem ekki eru með skert ónæmiskerfi) með eðlilega nýrnastarfsemi sem eru 18 ára og eldri og hafa áður verið greindir af lækni með áblástur (frunsur) og þurfa endurtekna meðferð vegna áblásturs.

Gleypa skal töflurnar heilar með vatni. Til þess að fá sem mestan ávinning af meðferðinni er mikilvægt að hefja hana strax og fyrstu einkenna verður vart. Fyrirboðaeinkenni geta verið kitlandi tilfinning, kláði eða sviði á verðandi staðsetningu frunsunnar. Á meðan þú tekur Valaciclovir Actavis er mjög mikilvægt að þú drekkir vatn reglulega yfir daginn. Þetta stuðlar að því að draga úr mögulegum aukaverkunum.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

Frekari upplýsingar

Form

Styrkur

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking