Til baka

Solaray BioCitrate Potassium 60 hylki

Potassium (Kalíum) er mikilvægt fyrir heilbrigt taugakerfi og reglulegan hjartslátt. Það er talið vinna gegn hjartaáföllum og hjálpa til við vöðvasamdrátt. Kalíum og natríum vinna saman að eðlilegu vökvajafnvægi í líkamanum. Kalíum er mikilvægt í efnahvörfum í frumum, hjálpar til...

1.503 kr.

1.503 kr.

vnr: 88023654

Potassium (Kalíum) er mikilvægt fyrir heilbrigt taugakerfi og reglulegan hjartslátt. Það er talið vinna gegn hjartaáföllum og hjálpa til við vöðvasamdrátt. Kalíum og natríum vinna saman að eðlilegu vökvajafnvægi í líkamanum.

Kalíum er mikilvægt í efnahvörfum í frumum, hjálpar til við að viðhalda jöfnum blóðþrýstingi og flutning rafboða hjá frumum. Einnig stjórnar kalíum flutningi næringarefna í gegnum frumuhimnur. Sífellt fleiri rannsóknir benda til jákvæðra áhrifa kalíums og magnesíums gegn háþrýstingi og ýmis konar hjartasjúkdómum. Einnig leiddi rannsókn á fólki með síþreytu í ljós að neysla kalíums og magnesíums (1 g af hvoru á dag) dró úr einkennum þeirra. Kaffi, tóbak, þvagræsilyf, sykur og áfengi eru gagnvirk kalíumi. Skortur á kalíum er fremur óalgengur en kemur helst fram hjá fólki sem notar þvagræsandi lyf þar sem þau eyða kalíum úr líkamanum. Einkenni skorts lýsa sér sem bjúgur, blóðsykurskortur, háþrýstingur, þreyta, slen, vöðvaverkir, húðþurrkur, niðurgangur, harðlífi og fl.

Eitt hylki á dag með mat eða vatnsglasi.

Potassium (as Potassium Citrate)