Til baka

Þorskalýsi með sítrónubragði 240 ml

Sítrónulýsi, hrein hollusta með háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum og auðug af A-, D- og E-vítamínum.

1.090 kr.

vnr: 88018629

Þorskalýsi inniheldur A- og D-vítamín sem styrkja vöxt tanna og beina, hafa góð áhrif á sjónina og styðja við ónæmiskerfi líkamans. Það er einnig auðugt af ómega-3 fitusýrum sem eru þau næringarefni sem hvað mest hafa verið rannsökuð á síðustu áratugum. Niðurstöðurnar sýna að ómega-3 fitusýrurnar gegna margþættu hlutverki í líkamanum. Þær ásamt vítamínunum skýra hollustu þorskalýsisins sem löngum hefur verið kunn meðal Íslendinga.

Þorskalýsi er framleitt úr íslenskri lifur sem safnað er frá bátum og skipum um land allt.

Börn 1-5 ára: 1 teskeið (5 ml) á dag – 6 ára og eldri: 2 teskeiðar (10 ml) á dag