Til baka

Septabene citron og honning

16 stk - Sogtöflur

Septabene citron og honning munnsogstafla er bólgueyðandi, verkjastillandi og sýkladrepandi lyf til staðbundinnar notkunar í munnhol. Septabene citron og honning sótthreinsar munn og háls og dregur úr bólgueinkennum í hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni. Septabene...

2.195 kr.

vnr: 419733

Septabene citron og honning munnsogstafla er bólgueyðandi, verkjastillandi og sýkladrepandi lyf til staðbundinnar notkunar í munnhol. Septabene citron og honning sótthreinsar munn og háls og dregur úr bólgueinkennum í hálsi, svo sem verk, roða, þrota, hita og skertri virkni.

Septabene citron og honning er ætlað fullorðnum, unglingum og börnum eldri en 6 ára til meðferðar á einkennum hálsbólgu sem tengjast vægum sýkingum í munni og hálsi.

Fullorðnir: Ráðlagður skammtur er 3−4 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti.

Unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 3−4 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti.

Börn á aldrinum 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 3 munnsogstöflur á dag. Leysa á eina munnsogstöflu hægt upp í munninum á 3 til 6 klukkustunda fresti.

Fullorðinn þarf að fylgjast með notkun munnsogstaflna hjá börnum á aldrinum 6 til 12 ára.

Börn yngri en 6 ára mega ekki nota Septabene citron og honning.

Virku innihaldsefnin eru benzydaminehydrochloride og cetylpyridiniumchloride.

Frekari upplýsingar

Form

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking