Til baka

Selaolía fyrir hunda 300ml

Dog Nikita Selolje eða Pólarolía eins og hún hét áður er lýsi fyrir hunda sem gerir gott fyrir liði, feld og húð hunda.

3.836 kr.

3.836 kr.

vnr: 88027091

Dog Nikita Selolje eða Pólarolía eins og hún hét áður er lýsi fyrir hunda sem gerir gott fyrir liði, feld og húð hunda. Olían er unnin úr Selalýsi og er mjög rík af OMEGA 3 fitusýrum sem eru þó frábrugðnar þeim fitusýrum sem koma úr fiskalýsi.
Dog Nikita Selaolían styrkir ofnæmiskerfi hunda, er græðandi fyrir sár og styrkir þófaflöt hundsins og er því fyrirbyggjandi á það álag sem þar myndast. Hentar vel fyrir bæði smá og stóra hunda.

Skammtur á dag m.v. lífþunga: 

  • Undir 10 kg: 2,5 ml
  • 11-30 kg: 5 ml
  • Meira en 30 kg: 10 ml
  • Blandið olíunni út á fóður

Geymsla: Geymist á dimmum og köldum stað þar sem börn ná ekki til.

Innihald: Selaolía, lýsi, andoxunarefni (alfa-tókóferól).

Innihald pr. 5 ml (1 teskeið)

  • Selaolía og lýsi: 4600 mg
  • Þar af omega-3: 794 mg
  • -Þar af EPA: 208 mg
  • -Þar af DHA: 293 mg
  • -Þar af DPA: 130 mg