Til baka

ColdZyme Munnúði gegn kvefi

ColdZyme® munnúði dregur úr hálssærindum og styttir kveftímann. Munnúðinn er auðveldur í notkun og verkar strax með því að mynda varnarhjúp í munnholi og koki. Þannig dregur hann úr hættu á kvefi og getur stytt sjúkdómsferlið ef hann er notaður...

3.949 kr.

vnr: 88025808

ColdZyme® munnúði dregur úr hálssærindum og styttir kveftímann. Munnúðinn er auðveldur í notkun og verkar strax með því að mynda varnarhjúp í munnholi og koki. Þannig dregur hann úr hættu á kvefi og getur stytt sjúkdómsferlið ef hann er notaður á frumstigi smits. ColdZyme® munnúði er notaður í munnhol og kok þar sem kvefveiran tekur sér bólfestu og fjölgar sér. Varnarhjúpurinn fangar veirurnar og kemur í veg fyrir að þær sýki frumur og hjálpar þannig líkamanum við að losa sig við þær á náttúrulegan hátt. ColdZyme hét áður PreCold en ColdZyme er alþjóðlegt nafn vörunnar og verið er að samræma nafnið í þeim löndum þar sem varan er seld.

Svona notar þú ColdZyme ® við kvefeinkennum: Beinið stútnum að kokinu og úðið tvisvar. Notið ColdZyme ® á 2-3 tíma fresti, u.þ.b. sex sinnum á dag. Notist meðan kveftímabilið stendur yfir. Hafið samband við lækni ef kvefeinkenni vara lengur en 10 daga. Fyrirbyggjandi notkun: Notið tvo úðaskammta þrisvar sinnum á dag, þó ekki lendur en 30 daga í senn. Haldið meðferð áfram þar til einkenni eru horfin. Hentar frá 4 ára aldri.

ColdZyme ® inniheldur lausn sem inniheldur glýseról, vatn, náttúrulegt ensím – trypsín úr þorski, etanól (<1 %), kalsíumklóríð, trómetamól og mentól. Lausnin er sykurlaus
og inniheldur engin rotvarnarefni, glúten eða mjólkursykur.