Til baka

PharmaHemp Premium CBD olía 12% 10ml

Grunnefnið í PharmaHemp CBD, heilvirkri (full spectrum) húðolíu, er sótt með því að nýta koldíoxíðpressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum og fleiri lífvirkum efnasamböndum...

11.890 kr.

11.890 kr.

vnr: PH005

Grunnefnið í PharmaHemp CBD, heilvirkri (full spectrum) húðolíu, er sótt með því að nýta koldíoxíðpressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum og fleiri lífvirkum efnasamböndum ásamt ólífuolíunni sem notast er við til íblöndunar myndast nokkurskonar „hópefli“ (e.entourage effect) sem hámarkar virknina sem ná má úr plöntunni.

Framleiðandi PharmaHemp olíunnar er PharmaHemp d.o.o. Fyrirtækið hefur ræktað iðnaðarhamp í Slóveníu og framleitt hampolíu í áratugi ásamt því að vera einn af fyrstu framleiðendum CBD snyrtivara í Evrópu. Þær eru um þessar mundir seldar í yfir 60 þjóðlöndum víða um heim.

www.pharma-hemp.com

CBD olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu) og þremur mismunandi CBD styrkleikum. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.05%.

Ráðlögð notkun: Einn dropi á húð 1-2svar á dag.

Hrista skal olíuna vel fyrir notkun og nota hana innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma olíuna upprétta utan mikillar birtu og hita. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota olíuna. Ef upp koma óþægindi í húð eða olían berst í augu skal skola með vatni.

OLEA EUROPAEA FRUIT OIL, CANNABIS SATIVA BIOMASS EXTRACT, MIXED TERPENES (LIMONENE, LINALOOL)

Hún inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessari olíu, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).