Til baka

Otrivin Junior ukonserveret

0,5 mg/ml - 10 ml - Nefúði

Otrivin Junior er ætlað börnum á aldrinum 2-11 ára.Otrivin Junior er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin Junior verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í bólginni slímhúð nefsins. Við það minnkar stíflan í...

1.192 kr.

vnr: 195104

Otrivin Junior er ætlað börnum á aldrinum 2-11 ára.Otrivin Junior er notað við nefstíflu vegna kvefs og bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin Junior verkar þannig að það dregur saman háræðarnar í bólginni slímhúð nefsins. Við það minnkar stíflan í nefinu og loftstreymið um nefið batnar. Verkun hefst eftir fáeinar mínútur og varir í allt að 12 klukkustundir.

Börn á aldrinum 2-5 ára: 1 úði í hvora nös 1 til 2 sinnum á sólarhring (á 8-10 tíma fresti) er venjulega nægilegt. Hámarksmeðferðartími er 10 sólarhringar. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring.
Börn á aldrinum 6-11 ára: 1-2 úðar í hvora nös, 2 til 3 sinnum á sólarhring að hámarki í 10 sólarhringa. Ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á sólarhring. Notkunarleiðbeiningar:
Snýttu þér ávallt áður en þú notar nefúðann.
Fyrir fyrstu notkun þarf að virkja úðadæluna með því að úða 4 sinnum út í loftið. Eftir það er úðadælan jafnan tilbúin til daglegrar notkunar á meðferðartíma. Haltu flöskunni lóðrétt.
Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Haltu fyrir aðra nösina með fingrinum. Settu stútinn á nefúðaflöskunni í hina nösina. Ýttu hratt á úðadæluna um leið og þú andar inn um nefið.
Endurtaktu þetta í hina nösina.

Frekari upplýsingar

Form

Styrkur

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking