Til baka

Omeprazol Actavis

20 mg - 14 stk - Sýruhjúpshylki

Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast prótónpumpuhemlar. Þeir verka með því að draga úr sýruframleiðslu magans. Omeprazol Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Við...

908 kr.

vnr: 066862

Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast prótónpumpuhemlar. Þeir verka með því að draga úr sýruframleiðslu magans.
Omeprazol Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít).
Við bakflæði berst sýra úr maganum upp í vélindað sem getur valdið bólgu og verkjum í vélinda.
Þetta getur valdið einkennum eins og sársaukafullum sviða fyrir brjósti og upp í kok (brjóstsviða) og súru bragði í munninum (nábít).

Mælt er með því að hylkin séu tekin að morgni.Taka má hylkin með mat eða á fastandi maga. Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni. Hylkin má hvorki tyggja né mylja. Þetta er vegna þess að hylkin innihalda húðuð korn sem hindra niðurbrot lyfsins í magasýrunni. Mikilvægt er að skemma ekki kornin. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2-3 daga samfellt áður en einkenni batna. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 14 daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is

Frekari upplýsingar

Form

Styrkur

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking