Númer Eitt Vörn Bætiefnabox 30 skammtar
6.947 kr.
6.947 kr.
Vara væntanleg
Viltu efla varnir líkamans gegn umgangspestum? Er flensutímabilið að skella á? VÖRN gæti hentað þér vel. VÖRN inniheldur B-vítamínblöndu, C-vítamín, sínk og D-vítamín sem allt eru næringarefni sem eru nauðsynleg fyrir eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. VÖRN inniheldur einnig jurtina sólhatt en rannsóknir hafa bent til þess að hún efli ónæmiskerfið og geti bæði hjálpað til við að koma í veg fyrir veikindi og stytta tíma veikinda. D-vítamín, C-vítamín, B-vítamínblanda, sínk og sólhattur. Næring beint úr náttúrunni sem líkaminn á auðvelt með að nýta. Laus við óþarfa aukefni. Þægilegir dagspakkar sem auðvelt er að taka með sér hvert sem er. Allt í einum pakka: bæði umhverfisvænna og hagkvæmara. Hver poki er 1 dagsskammtur sem inniheldur 5 töflur og hylki.
- 1x D vítamín
- 1x C-vítamín
- 1x sínk
- 1x sólhatt
- 1x B-vítamínblöndu
- Öflug blanda B-vítamína stuðlar m.a. að eðlilegri orkumyndun, dregur úr þreytu og stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-, ónæmis- og hormónakerfis.
- B12, fólat og B6 stuðla enn fremur að eðlilegum efnaskiptum hvað varðar hómósystein en það er amínósýra sem þarf að huga sérstaklega að með hækkandi aldri. Of hátt magn hómósýsteins í blóðinu hefur verið tengt við aukna hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og heilabilun en B12, fólat og B6 stuðla að því að halda magninu innan eðlilegra marka.
- C-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri myndum kollagens, styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið, ver frumur gegn oxunarálagi, eykur upptöku járns og dregur úr þreytu.
- D-vítamín stuðlar m.a. að eðlilegri úrvinnslu kalks og viðhaldi beina og tanna , styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi.
- Sínk stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og eðlilegu viðhaldi beina, tanna, húðar, hárs, nagla og sjónar.
- Sólhattur er talinn efla varnir líkamans, draga úr líkunum á veirusýkingum og stytta tíma veikinda