Nicotinell Mint
1 mg - 36 stk - Munnsogstöflur
1.762 kr.
Nicotinell Mint munnsogstöflur innihalda nikótín og eru fáanlegar í tveimur styrkleikum 1 mg og 2 mg. Nikótínið í Nicotinell munnsogstöflum dregur úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf, þegar þú hættir að reykja eða tímabundið meðan dregið er úr reykingum. Þegar þú sýgur Nicotinell Mint munnsogtöflurnar losnar nikótínið hægt og frásogast í gegnum slímhúðina í munninum.
Ráðlagður sólarhringsskammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota 2 mg munnsogstöflur ef þú hefur mikla nikótínþörf eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með því að nota 1 mg munnsogstöflurnar. Annars er ráðlegt að nota Nicotinell 1 mg munnsogstöflur.Notkunarleiðbeiningar:
1. Munnsogstaflan er sogin þar til sterkt bragð finnst.
2. Síðan er taflan látin liggja milli kinnar og tannholds.
3. Þegar bragðið minnkar á að sjúga munnsogstöfluna aftur.
4. Endurtakið þar til munnsogstaflan er fullkomlega uppleyst (um 30 mínútur).
Frekari upplýsingar
Form | |
---|---|
Styrkur | |
Magn | |
Heiti Innihaldsefnis | |
Merking |
Get ég aðstoðað?
