Til baka

Nicorette QuickMist

1 mg/sk - 150 skammtar - Munnholsúði

Nicorette QuickMist er notað sem hjálparmeðal til að halda reykbindindi, þegar fólk er að reyna að hætta að reykja. Lyfið tilheyrir þeim flokki lyfjameðferðar sem nefnist nikótínuppbótarmeðferð. Nicorette QuickMist er notað til að draga úr fráhvarfseinkennum nikótíns, þ.m.t. reykingaþörf, einkennum...

3.360 kr.

vnr: 197554

Nicorette QuickMist er notað sem hjálparmeðal til að halda reykbindindi, þegar fólk er að reyna að hætta að reykja. Lyfið tilheyrir þeim flokki lyfjameðferðar sem nefnist nikótínuppbótarmeðferð. Nicorette QuickMist er notað til að draga úr fráhvarfseinkennum nikótíns, þ.m.t. reykingaþörf, einkennum sem fólk fær þegar það hættir að reykja. Þegar skyndilega er hætt að sjá líkamanum fyrir nikótíni úr tóbaki fær fólk ýmiss konar óþægindi sem kallast fráhvarfseinkenni. Með notkun Nicorette QuickMist er hægt að koma í veg fyrir eða draga úr þessum óþægindum og löngun til að reykja. Það er vegna þess að í skamman tíma fær fólk áfram lítið magn af nikótíni í líkamann. Nicorette QuickMist inniheldur ekki tjöru, kolsýring og önnur eiturefni sem eru í sígarettum.

Þrep 1: 1.-6. vika Notaðu 1 eða 2 úða (úðaskammta), á þeim tíma sem þú ert vanur/vön að reykja sígarettu eða þegar reykingalöngunin gerir vart við sig. Notaðu fyrst 1 úða og síðan einn úða til viðbótar ef löngunin hverfur ekki innan nokkurra mínútna. Ef þörf er fyrir 2 úða má nota 2 úða í röð þegar næstu skammtar eru notaðir. Fyrir flest reykingafólk þýðir þetta u.þ.b. 1 eða 2 úða á hálfrar til einnar klukkustundar fresti. Ef þú reykir t.d. 15 sígarettur á dag að meðaltali, skaltu nota 1 eða 2 úða að minnsta kosti 15 sinnum yfir daginn. Ekki nota meira en 2 úða í hvert skipti eða 4 úða á klukkustund í 16 klukkustundir. Hámarksskammtur er 64 úðar á 16 klukkustundum á hverjum sólarhring.
Þrep 2: 7.-9. vika
Byrjaðu að draga úr daglegum úðafjölda.
Í lok 9. viku áttu aðeins að nota HELMINGINN af þeim úðafjölda sem þú notaðir að meðaltali daglega á 1. þrepi meðferðarinnar.
Þrep 3: 10.-12. vika
Haltu áfram að draga úr úðafjölda sem þú notar yfir daginn, þannig að þú notir ekki fleiri en 4 úða daglega í 12. viku. Hættu að nota Nicorette QuickMist, þegar þú hefur minnkað úðafjöldann niður í 2-4 á dag

Frekari upplýsingar

Form

Styrkur

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking