Nasogen
1 mg/ml - 10 ml - Nefúði
943 kr.
Nasogen er ætlað til að draga úr aukinni slímmyndun í tengslum við nefslímubólgu og skútabólgu. Sterkari styrkleikinn 1 mg/ml er ætlaður fyrir fullorðna og börn eldri en 10 ára. Skammtar eru einn úðaskammtur (0,14 ml) í hvora nös, ekki oftar en þrisvar á dag, mest 7 daga í senn. Tíminn á milli skammta skal ekki vera styttri en 6 klst. Nefúða sem er 1 mg/ml skal ekki nota handa börnum yngri en 10 ára. Fyrir börn yngri en 10 ára og fullorðna fæst nefúði sem er 0,5 mg/ml. Ekki er mælt með notkun lyfja sem innihalda xylometazolin hjá börnum yngri en 2 ára.
Nefúðinn er með hlífðarloki sem ver stútinn
og heldur honum hreinum. Mundu að fjarlægja það áður
en úðinn er notaður. Snýttu þér gætilega. Settu stútinn í
aðra nösina og haltu glasinu uppréttu. Úðaðu einu sinni
um leið og þú andar rólega inn í gegnum nefið. Hreinsaðu
stútinn með þurri pappírsþurrku og settu lokið á aftur.
Frekari upplýsingar
Form | |
---|---|
Styrkur | |
Magn | |
Heiti Innihaldsefnis | |
Merking |
Get ég aðstoðað?
