Til baka

Membrasin Dermal bætiefni fyrir húðina 90stk

Varan hefur virk og fyrirbyggjandi áhrif á viðkvæma og þurra húð og jafnvel á exem. Láttu náttúruna sjá um þig og þína nánustu frá toppi til táar

4.785 kr.

4.785 kr.

vnr: 56001070

Membrasin® Dermal. Varan hefur virk og fyrirbyggjandi áhrif á viðkvæma og þurra húð og jafnvel á exem. Láttu náttúruna sjá um þig og þína nánustu frá toppi til táar.

Náttúruleg næringaruppbót og stuðningur við heilbrigða húð. Sameinar kosti sólberjafræjaolíu, hafþyrnisolíu og náttúrulegra A- og E-vítamína.
• Ómega-3, -6, -7 og -9 fitusýrur, A og Evítamín
• Fyrir þurra húð og húðertingu
• Stuðlar að því að viðhalda heilbrigði
húðarinnar
• Rakastig húðarinnar bætt á 2–5 vikum

Membrasin®-bætiefnið til að bæta vökvastig húðarinnar stuðlar að viðhaldi varnarlags húðarinnar og kemur í veg fyrir og róar þurra húð og kláða. Það er náttúruleg næringaruppbót og stuðningur við heilbrigða húð.

Bætiefnið inniheldur einstaka blöndu BC634®-sólberjafræjaolíu og SBA24®-hafþyrnisolíu. Báðar eru þær ríkar af lífsnauðsynlegum fitusýrum til að viðhalda heilbrigði húðarinnar. Sýnt hefur verið fram á öryggi og virkni BC634®-sólberjafræjaolíu og SBA24®-hafþyrnisolíu með vísindalegum rannsóknum.
Bætiefnið inniheldur einnig A-vítamín úr náttúrulegu betakarótíni sem stuðlar að viðhaldi eðlilegrar húðar og slímhúðar og E-vítamín sem verndar húðina gegn oxunarskemmdum.
BC634®- og SBA24®-olíurnar eru unnar úr berjum og berjafræjum á varfærinn hátt til að varðveita virkni fitusýranna og annarra innihaldsefna. Olíurnar eru aðeins unnar úr berjum sem eru lífrænt ræktuð eða vaxa villt. Framleiðsluferlið er vistvænt og engin leysiefni eru notuð.
• Lífsnauðsynlegar ómega-3, -6, -7 og -9 fitusýrur og A og E-vítamín stuðla að heilbrigði
húðarinnar
• Gammalínólensýra (GLA) styður við rakajafnvægi húðarinnar
• A-vítamín* styður við eðlilega starfsemi slímhúðar og ónæmiskerfis
• E-vítamín* veitir andoxunarvörn
• Náttúruleg, virk innihaldsefni á borð við hafþyrnis- og sólberjafræjaolíu
• Yfirleitt finnur fólk mun innan 2–5 vikna
• Gelhylkin eru unnin úr jurtum og henta grænkerum (vegan

Í upphafi 2 x 2 hylki með máltíðum. Eftir það 2–4 hylki á dag.

Ekki taka meira en ráðlagðan dagskammt.

BC634®
-sólberjafræjaolía og SBA24®
-hafþyrnisolía (72,4%) (CO2-útdráttur); hylki (umbreytt maíssterkja, glýseról, hleypiefni: Garrageenan, sýrustillir: dínatríumfosfat), E-vítamín (alfa-tókóferól í sólblómaolíu), betakarótín (betakarótín í sólblómaolíu), andoxunarefni (rósmarínextrakt í sólblómaolíu)