Til baka

Lýsi Omega-3 Fiskiolía 240ml

Omega-3 fiskiolía er framleidd úr fiskitegundum sem eru auðugar af Omega-3 fitusýrum. Omega 3 styður við starfsemi hjarta- og æðakerfisins auk þess gegnir það mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfs.

1.302 kr.

vnr: 320320220

Omega-3 fiskiolía er framleidd úr fiskitegundum sem eru auðugar af Omega-3 fitusýrum. Áhrif Omega-3 fitusýra, einkum EPA og DHA, hafa verið rannsökuð ítarlega og niðurstöður rannsóknanna birst í vísindaritum víða um heim. Jafnframt er oft fjallað um jákvæða eiginleika þeirra í fjölmiðlum. Því hefur meðal annars verið haldið fram að Omega-3 fiskiolía hafi jákvæð áhrif á andlega heilsu og hún dragi úr liðverkjum og morgunstirðleika. Omega-3 fitusýrur hafa einnig góð áhrif á hjarta- og æðakerfi auk þess að gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu heila og miðtaugakerfs.

1 teskeið (5 ml)
Omega-3 frá LÝSI inniheldur ekki vítamín og má því taka með þorskalýsi og öðrum tegundum lýsis.