Til baka

Lyngonia

60 stk - Filmuhúðaðar töflur

Lyngonia er einstök meðferð án sýklalyfja til meðhöndlunar á vægum, endurteknum þvagfærasýkingum kvenna. Lyfið inniheldur úrdrátt úr sortulyngi sem hefur þekkta verkun og langa sögu um virkni gegn vægri blöðrubólgu.  Hver pakkning inniheldur allt að 3 meðferðarskammta.

5.390 kr.

vnr: 127403

Lyngonia er lausasölulyf og fæst án lyfseðils í flestum apótekum. Lyngonia™ er jurtalyf til meðferðar á einkennum vægrar, endurtekinnar sýkingar í neðri hluta þvagfæra, svo sem brunatilfinningu við þvaglát og/eða auknum þvaglátum hjá konum, eftir að alvarleg veikindi hafa verið útilokuð af lækni.Þetta lyf er jurtalyf sem hefð er fyrir og tilgreinda ábendingin fyrir notkun þess er eingöngu byggð á langri sögu um notkun lyfsins. Filmuhúðaðar töflur innihalda jurtaútdrátt úr sortulyngi (bearberry).

fróðleikur um Lyngonia

Fullorðnar konur: 2 töflur 2-4 sinnum á dag

Notið ekki lengur en viku. Hafið samband við lækni eða heilbrigðisstarfsmann ef einkenni versna eða eru viðvarandi í meira en 4 daga. Notið ekki ef truflun á nýrnastarfsemi er þekkt. Ekki ætlað yngri en 18 ára, körlum, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á serlyfjaskra.is.

Hver tafla inniheldur 361–509 mg af útdrætti (sem þurr útdráttur) af Arctostaphylos uva-ursi (L.) Spreng., folium (sortulyngslauf), sem jafngildir 105 mg af hýdrókínónafleiðu reiknað sem vatnsfrítt arbútín. Við framleiðslu á hverri töflu eru notuð 903–2291 mg af þurrkuðu sortulyngslaufi.

Frekari upplýsingar

Form

Magn

Heiti Innihaldsefnis

Merking