Til baka

Feel Iceland Amino Collagen 300gr

Rannsóknir hafa sýnt fram á að með inntöku á Collagen próteini er hægt að minnka verki í liðum og draga verulega úr hrukkumyndun. Amino Marine Collagen er fyrsta varan í fæðubótarefna línunni Feel Iceland. Amino Marine Collagen er framleitt úr íslensku fiskroði, aðallega úr þorsk, sem syndir villtur um Atlantshafið.

7.990 kr.

7.990 kr.

vnr: 88025366

HVAÐ ER COLLAGEN?
Collagen (kollagen) er eitt aðal uppbyggingar prótein líkamans. Collagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum. Einnig er Collagen mjög stór partur af húð, hári og nöglum. Collagen prótein sjá til þess að vefir líkamans haldist sterkir.
Líkaminn framleiðir Collagen en um 25 ára aldur fer að hægjast verulega á framleiðslunni, að meðaltali um 1,5% á hverju ári, eins og sjá má á línuritinu hér til hliðar.

Þegar Collagen framleiðslan minnkar byrja vefir líkamans að veikjast og það fer að bera á ýmsum öldrunar einkennum svo sem verkjum í liðum og liðamótum. Einnig byrja að myndast hrukkur og teygjanleiki í húð minnkar.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að með inntöku á Collagen próteini er hægt að minnka verki í liðum og draga verulega úr hrukkumyndun.

Blandið 2 matskeiðum (RDN) daglega í drykki eða mat að eigin vali.