Difrax I Love snuð 18m+ 1stk
1.834 kr.
Snuð fyrir litlu krílin frá ca 18 mánaða aldri.
Snuð sem mæta sogþörf barna og líkir túttan eftir lagi geirvörtunnar.
Túttan er sporöskjulaga og gerir því barninu kleift að snúa snuðinu í munninum.
Þar sem skjöldur snuðanna er fiðrildalagaður, falla þau vel að munni barnsins og það loftar vel um vitin.
Stærðin og lagið á snuðunum, stór skjöldur og fyllt silikontúttan, með engu tómarúmi, er sérstaklega hannað með það í huga að snuðin henti börnum frá 18 mánaða aldri. Stíf og fyllt túttan, með engu tómarúmi, gerir börnunum erfiðarara fyrir að bíta hana í gegn.
Túttan er hönnuð til að mæta náttúrulegri minnkandi sogþörf, sem aftur eru fyrstu skrefin í átt að því að barnið sleppi snuðinu.
Ráðlagt er að snuðum sé skipt út á 6 vikna fresti. Einnig er mikilvægt að framkvæma daglega athugun á snuði, toga þéttingsfast í túttuna sjálfa og ganga úr skugga um að snuðið sé heilt og óskemmt.
Fari barn að bíta í snuðin þá er ráðlagt að bjóða því nagstykki eða tanntökuhringi í staðinn.
Difrax vörurnar eru þróaðar í samvinnu við læknateymi sem m.a. samanstendur af barnalæknum, talmeinatæknum, tannlæknum, mjólkursérfræðingum og næringarráðgjöfum.
Allar Difrax vörurnar eru BPA fríar.
Tengdar vörur
PoxClin fyrir hlaupabólu 100ml
Kælandi froða sem dregur samstundis úr óþægi... Verð: 3.340 kr.Mam Pelabursti
Mjúkur bursti til að þrífa pela og túttur.... Verð: 2.315 kr.MAM Peli Anti-Colic 260ml
MAM Easy start pelinn með ventilbotni sem ke... Verð: 2.289 kr.Sjá nánarVara væntanleg
Childs Farm Baby Nuddolía 75ml
Létt og góð nuddolía fyrir ungabörn, sem inn... Verð: 3.154 kr.