Til baka 20%

Better You D-Lux munnúði undir 3 ára 15ml

D-vítamín er nauðsynlegt til að stuðla að heilbrigðum beinum og tönnum. Það er líka nauðsynlegt til að viðhalda öflugu og kröftugu ónæmiskerfi. Með munnúðunum frá Better You geturðu gengið úr skugga um að börnin séu að fá nóg af þessu mikilvæga vítamíni. D-Lux infant er fyrir börn yngri en 3ja ára.

1.315 kr.

vnr: 88026547

Hver einasta fruma líkamans þarf D-vítamín og það er jafnframt eina vítamínið sem við þurfum að fá á bætiefnaformi alla ævi. Fljótlega eftir fæðingu þarf að huga að D-vítamíngjöf fyrir ungabarnið því að móðurmjólkin sem er svo næringarrík inniheldur ekki nægilegt magn af þessu vítamíni.

Skortur á D-vítamíni tengist yfir 100 sjúkdómseinkennum og getur það m.a. komið fram í lélegri beinheilsu og skemmdum tönnum því það sér um að frásoga kalkið úr blóðinu til að að nýtist sem best en 99% af kalki er að finna einmitt í beinum og tönnum.

D Lúx frá Better you er til fyrir alla aldurshópa og er D Lúx – infant hugsað fyrir börn yngri en þriggja ára. Hver úði inniheldur ráðlagðan dagsskammt fyrir ungabörn, 400 a.e. og það eru 100 skammtar í glasinu.

Upptaka gegnum slímhúð (undir tungu og/eða út í kinn) tryggir hámarksupptöku.