Til baka

Cibdol CBD Zemadol Exem Krem 50ml

Zemadol exemkremið er lækningavara (e. medical device, class 1) sem örvar myndun heilbrigðra húðfruma ásamt því að sefa kláða og sársauka sem fylgja exemi. Í kreminu er sérstaklega unnið þykkni úr fínmöluðum höfrum sem myndar húð af fjölsykrum sem kæla og róa erfið húðsvæði. Í formúlu Zemadol er auk CBD og hafranna m.a. að finna fjölmörg vítamín og andoxunarefni sem bæði örva í senn uppbyggingu og varnarkerfi húðarinnar. Ábending. Þeir sem hafa gras-, gluten- eða sojaofnæmi ættu að sýna aðgát við notkun Zemadol (hafrar innihalda gluten og lecitin er unnið úr soja).

8.390 kr.

8.390 kr.

vnr: 88035412

Zemadol exemkremið er lækningavara (e. medical device, class 1) sem ætlað er að styðja við bataferli ertrar og þurrar húðar vegna ofnæmishúðbólgu (exem). Lykillinn að sérstaklega skjótvirkum áhrifum Zemadol er mikilvæg vatnsfælin fitumólikúl (liposome) sem m.a. eru mikið notuð í lyfjageiranum. Fitukornin auðvelda CBD og öðrum innihaldsefnum beinar tengingar við frumur húðarinnar og vinnu sína gegn exemi bæði á yfirborði og í dýpri lögum hennar þar sem þörfin er gjarnan mest.

 

Zemadol örvar myndun heilbrigðra húðfruma ásamt því að sefa kláða og sársauka sem fylgja exemi. Í kreminu er sérstaklega unnið þykkni úr fínmöluðum höfrum sem myndar húð af fjölsykrum sem kæla og róa erfið húðsvæði. Í formúlu Zemadol er auk CBD og hafranna m.a. að finna fjölmörg vítamín og andoxunarefni sem bæði örva í senn uppbyggingu og varnarkerfi húðarinnar.

 

Verkferlar, notkun og geymsla.

CBD (Cannabidiol) innihald Cibdol exemkremsins er unnið af ítrustu fagmennsku úr iðnaðarhampi (Cannabis sativa jurt) og kappkostað er að önnur innihaldsefni séu einnig eins hrein og náttúruleg og frekast er unnt. Allir verkferlar að baki svissnesku Cibdol CBD vörunum eru GMP gæðavottaðir, jafnt í rannsóknarstofum sem ræktun og framleiðslu. Best er að geyma Zemadol utan mikillar birtu og hita. Notist einungis útvortis. Berist ekki í augu.

www.cibdol.com

Ábending.

Þeir sem hafa gras-, gluten- eða sojaofnæmi ættu að sýna aðgát við notkun Zemadol (hafrar innihalda gluten og lecitin er unnið úr soja).

 

Meira um CBD.

CBD hefur verið mikið í umræðu og fréttum víða um heim að undanförnu vegna fjölbreyttra áhrifa sinna til bættrar heilsu. Víðfeðmar undirbúningsrannsóknir gefa sterkar vísbendingar um ýmis jákvæð áhrif af tengingum CBD kannabínóða (e. cannabinoid) við endókannabínóðakerfið (e. endocannabinoid system (ECS)) sem verið hefur til staðar í lífríkinu og um leið manninum frá örófi alda. CBD er á meðal innihaldsefna í lyfseðilsskyldum tauga- og flogaveikislyfjum og víða í vísindasamfélaginu er viðurkenning á jákvæðum áhrifum CBD á t.d. kvíða, streitu og svefn ásamt því að þekkt virkni er t.d. á bólgur og verki. Langt er í frá að allar CBD vörur séu svipaðar. Þar getur m.a. munað um ólíkar ræktunar- og vinnsluaðferðir og sömuleiðis eru því miður dæmi um að raunverulegt magn af CBD sé minna en upp er gefið. Þess vegna þarf að velja framleiðendur af kostgæfni.