Til baka

Aleria við bólum og óhreinindum í húð 50 ml.

Aleria er áhrifaríkt krem gegn bólum og húðóhreinindum á borð við fílapensla. Bólukremið minnkar  roða, bólgur og kláða ásamt því að veita góðan raka. Aleria hefur hlotið viðurkenningar og var valið bólukrem ársins 2019 í Svíþjóð.  

3.190 kr.

vnr: 88031261

Vara væntanleg

Aleria hefur viðurkennda virkni og er ætlað til útvortis notkunar á bólum og húðóhreinindum. Í alvarlegri tilfellum er Aleria góð viðbótarmeðferð með lyfjum gegn bólum. Kremið er einstaklega mjúkt fyrir viðkvæma húð og má nota bæði á andlit og líkama. Aleria kremið er vatnsleysanlegt og veitir húðinni mikinn raka. Kremið myndar varnarhimnu sem kemur í veg fyrir sýkingar sem eru þekktur fylgikvilli bóla. Hjúpurinn varðveitir einnig raka húðarinnar og ver viðkvæma húð fyrir ertandi efnum úr umhverfinu. Kremið róar húðina, mýkir og myndar kjöraðstæður fyrir húðina til að gróa og endurnýja sig. Aleria er margprófað og sýna niðurstöður klínískra og forklínískra rannsókna að kremið veitir skjóta virkni á bólur, roða og bólgur í húð. Eftir 4 vikna meðferð minnkar verulega fjöldi bóla sem og alvarleiki þeirra.

Áður en kremið er borið á er mikilvægt að þvo hendur og húð og þurrka vel. Þunnt lag af kreminu er borið á viðkomandi svæði  tvisvar á dag þar til að náðst hefur fullur bati. Aukaverkanir (mjög sjaldgjæft): vægur svið, roði, kláði. Engar þekktar milliverkanir eru við lyf eða aðrar vörur. Kremið inniheldur hvorki ilmefni né paraben. Nánari upplýsingar er að finna í fylgiseðli.

TIAB efnasamband hýalúrónsýra, aloe vera

TIAB er einstakt efnasamband myndað úr silfurjónum* tengdum títaníumdíoxíð míkrókristöllum. Það myndar örverudrepandi varnarhjúp yfir viðkomandi svæði sem veitir vörn gegn örverum og ertandi efnum. Hjúpurinn veitir kjöraðstæður fyrir húðina að gróa og endurnýja nýja sig.

Aloe vera jurtaútdráttur sem róar húðina og veitir raka.

Hýalúrónsýra er rakagjafi ásamt því að styðja við myndun varnarhjúpsins.

 

*Rannsóknir sýna að silfurjónir í TIAB sambandinu frásogast ekki um húð, hvorki heila húð né rofna. Varan inniheldur 0.005% míkrósilfurjónir.